Table of Contents | Words: Alphabetical - Frequency - Inverse - Length - Statistics | Help | IntraText Library
Paulus PP. VI
Humanae Vitae

IntraText CT - Text

  • II. hluti SPURNINGAR UM KENNISETNINGU
    • 10
Previous - Next

Click here to hide the links to concordance

Ábyrgt foreldrahlutverk
 10Kærleikur hjónabandsins krefst þess af hjónunum, þau geri sér fullu grein fyrir skyldum sínum í sambandi við foreldrahlutverkið og ábyrgð þess og lögð er rík áhersla á á dögum eins og rétt erEn þá verður einnig ríkja réttur skilningur á því hvað í þessu felstÞað verður líta á málið með hliðsjón af hinum mismunandi röksemdum, sem þó tengjast innbyrðis, og hvað í þeim telst réttlætanlegt.
 Ef vér lítum fyrst á málið út frá hinu líffræðilega ferli, þá felst ábyrgt foreldrahlutverk í því þekkja það ferli og virða þaðFyrir getnaðareiginleika sinn fær maðurinn skilið lögmál líffræðinnar sem felur einnig í sér mannlegt eðli. 9
 Ef vér hins vegar könnum eðlislægar langanir og tilfinningar mannsins, þá felst í ábyrgu foreldrahlutverki sýna styrk til dómgreind og vilja beitt við hafa stjórn á þeim.
 En ef vér víkjum öðrum þáttum, sem við eiga, eins og líkamlegar, efnahagslegar, sálfræðilegar og félagslegar aðstæður, þá sýna þau hjón ábyrgt foreldrahlutverk sem af dyggð og örlæti ákveða setja á stofn stóra fjölskyldu, eða þau sem vegna óviðráðanlegra aðstæðna og með því halda í heiðri siðferðislögmálið, ákveða eignast ekki fleiri börn um stund eða jafnvel um óákveðinn tíma.
 Innan ramma þeirrar skilgreiningar sem vér notum yfir "ábyrgt foreldrahlutverk" ber jafnframt geta gífurlega mikilvægs atriðis, sem hefur meiri og dýpri þýðingu í þessu sambandiEr þá vísað til þess hlutlæga siðferðis sem Guð kom á - siðferðis sem hver einlæg samviska fær skilið á réttan háttÞetta þýðir, þau hjón sem vilja sýna "ábyrgt foreldrahlutverk" verða hafa forgangsröðina rétta og gangast við skyldum sínum gagnvart Guði, þeim sjálfum, fjölskyldum sínum og samfélaginu.
 Af þessu leiðir þau eru ekki frjáls til gera það sem þau lystir í þjónustu sinni við geta nýtt líf, það lögmætt fyrir þau ákveða, burt séð frá öðrum forsendum, hvaða stefnu þeim beri takaÞvert á móti eru þau bundin af því tryggja það verknaður þeirra í samræmi við vilja Guðs, skapara vorsÞað er grundvallareðli hjónabandsins og hjónalífsins, sem leiðir þetta í ljós og stöðug kenning kirkjunnar staðfestir. 10




9 Sbr. heilagur Tómas, Summa Theologica, I-II, sp. 94, 2. grein.


10 Sbr. annað Vatíkanþingið, Gaudium et spes, n. 50-51, AAS 58 (1968), bls. 1070-1073.





Previous - Next

Table of Contents | Words: Alphabetical - Frequency - Inverse - Length - Statistics | Help | IntraText Library

Best viewed with any browser at 800x600 or 768x1024 on Tablet PC
IntraText® (V89) - Some rights reserved by EuloTech SRL - 1996-2007. Content in this page is licensed under a Creative Commons License