Table of Contents | Words: Alphabetical - Frequency - Inverse - Length - Statistics | Help | IntraText Library
Paulus PP. VI
Humanae Vitae

IntraText CT - Text

  • II. hluti SPURNINGAR UM KENNISETNINGU
    • 16
Previous - Next

Click here to hide the links to concordance

Lögmæti þess velja ófrjó tímabil
 16Hins vegar, eins og vér höfum áður getið (nr. 3), hefur sumt fólk í dag lagst gegn þessari kenningu kirkjunnar sem fjallar um þau siðferðislögmál sem stjórna hjónabandinuRöksemd þeirra er mannleg skynsemi hafi bæði þann rétt og þá ábyrgð stjórna þeim óskynsamlegu öflum náttúrunnar, sem hún er fær um og beina þeim á þær brautir sem séu til hagsbóta fyrir manninnAðrir varpa fram þeirri spurningu varðandi þetta atriði hvort það ekki sanngjarnt í svo mörgum tilfellum nota tilbúnar getnaðarvarnir ef það ýtir undir sátt og samlyndi fjölskyldunnar og þau skilyrði skapist betri aðstæður verði til mennta þau börn sem þegar eru fæddÞessari spurningu verðum vér svara á skýran háttKirkjan er fyrst allra til lofa og hvetja til þess mannleg skynsemi verði notuð á þeim sviðum þar sem vitsmunaveran, sem maðurinn er, starfar í nánum tengslum við skapara sinnEn kirkjan staðfestir þetta verði gerast innan takmarka þess raunveruleika, sem Guð hefur komið á.
 Ef nægar ástæður liggja baki því tímasetja fæðingar, hvort sem um ræðir líkamlegar eða andlegar aðstæður eiginmanns eða eiginkonu, eða vegna utanaðkomandi aðstæðna, kennir kirkjan þá megi hjón færa sér í nyt þá tíðahringi sem frá náttúrunnar hendi eru eðlislægur hluti æxlunarferlisins og uppfylla hjúskaparskyldur sínar nákvæmlega á þeim tímum sem eru ófrjó tímabilMeð þessum hætti geta þau haft stjórn á fæðingum og án þess ganga á nokkurn hátt gegn þeim grundvallarreglum siðferðis sem vér höfum verið útskýra. 20
 Ekki ber líta svo á mótsögn felist í því hjá kirkjunni eða í kenningu hennar þegar hún álítur það lögmætt fyrir hjón, nýta sér þau tímabil sem eru ófrjó en fordæmir ávallt sem ólögmæt þær aðferðir, sem koma beint í veg fyrir getnað jafnvel þegar ástæður sem gefnar eru fyrir hinum síðarnefndu aðferðum eru hvorki léttvægar siðlausarÞessar tvær aðstæður eru í raun og veru gjörsamlega ólíkarÍ fyrra tilfellinu nota hjónin réttilega þá aðferð, sem náttúran hefur gefið þeimÍ því síðara hindra þau náttúrulega þróun ferlisins sem felst í geta nýtt lífEkki skal á móti því mælt í báðum tilfellum hafa hjónin góðar ástæður og ásetningur þeirra er ljós, varna því börn fæðist og gera ráðstafanir svo verði ekkiEn sannleikurinn er jafnframt , einungis í fyrra tilfellinu eru hjónin reiðubúin halda sig frá kynmökum á meðan frjótt tímabil stendur yfir, og eins oft og sanngjarnar aðstæður gera það verkum fæðing annars barns er ekki talin æskilegOg þegar ófrjótt tímabil kemur á , þá nota þau samlíf hjónabandsins til tjá hvort öðru gagnkvæma ást sína og vernda tryggð sína gagnvart hvort öðru hafa þennan háttinn á er sannarlega sönnun þess um óyggjandi og ósvikna ást ræða.




20 Sbr. ávarp Píusar XII til ljósmæðra, AAS 43 (1951), bls. 846.





Previous - Next

Table of Contents | Words: Alphabetical - Frequency - Inverse - Length - Statistics | Help | IntraText Library

Best viewed with any browser at 800x600 or 768x1024 on Tablet PC
IntraText® (V89) - Some rights reserved by EuloTech SRL - 1996-2007. Content in this page is licensed under a Creative Commons License