Table of Contents | Words: Alphabetical - Frequency - Inverse - Length - Statistics | Help | IntraText Library
Paulus PP. VI
Humanae Vitae

IntraText CT - Text

  • III. hluti KIRKJAN VÍSAR VEGINN
    • 21
Previous - Next

Click here to hide the links to concordance

hafa stjórn á sjálfum sér
 21En forsenda hjóna fyrir réttri og lögmætri skipun barnsfæðinga er þau geri sér fullu grein fyrir gildi sannrar hamingju fjölskyldulífsins og í öðru lagi þau öðlist algjöra stjórn á sjálfum sér og tilfinningum sínumEf þau hafa stjórn á frumkenndum sínum með aðstoð skynseminnar og hins frjálsa vilja verða þau án efa stunda sjálfsafneitunEinungis þá mun kærleikurinn leita í réttan farveg í hjónabandinuOg þetta á sérstaklega við hvað varðar iðkun tímabundins skírlífisEn þess konar sjálfsagi ber skýrt vitni um siðlæti hjónanna sem er svo langt frá því vera hindrun á vegi gagnkvæmrar ástar þeirra, heldur umbreytir henni og gefur henni sönn mannleg einkenniOg ef slíkur sjálfsagi heimtar af þeim þau verði staðföst í ásetningi sínum og fyrirætlun, þá hefur hann á sama tíma heilnæm áhrif við aðstoða hjónin þróa með sér fullu persónuleika sinn og auðgar þau andlegri blessunÞví sjálfsaginn færir fjölskyldunni auðlegð friðar og kyrrðarHann aðstoðar við leysa annars konar vandamál sem upp komaHann ýtir undir gagnkvæma umhyggju kærleikansHann hjálpar þeim standast óeðlilega mikla eigingirni sem gengur þvert gegn kærleikanumÞau verða meðvituð um ábyrgð sínaOg lokum færir hann foreldrunum dýpri og árangursríkari aðferð við mennta börn sínÞau munu bæði á æsku- og unglingsárum sínum þróa með sér réttan skilning á þeim verðmætum sem varða sanna lífsblessun og öðlast eiginleika til nýta andlega og líkamlega orku á friðsaman og samstilltan hátt.




Previous - Next

Table of Contents | Words: Alphabetical - Frequency - Inverse - Length - Statistics | Help | IntraText Library

Best viewed with any browser at 800x600 or 768x1024 on Tablet PC
IntraText® (V89) - Some rights reserved by EuloTech SRL - 1996-2007. Content in this page is licensed under a Creative Commons License