Til þjóðarleiðtoga
23. Og nú viljum vér beina máli voru
til þjóðarleiðtoga, vegna þess að í
þeirra höndum er mest öll ábyrgð þess að
halda vörð um almenna velferð og þeir geta lagt mikið af
mörkum til að viðhalda siðgæði. Leyfið
aldrei að grafið sé undan siðgæði þjóðar
yðar. Þar sem fjölskyldan er grundvallareining hvers
ríkis þá látið ekki viðgangast að
löggjöf sé sett, sem opnar fjölskyldum leiðir sem
ganga gegn náttúrulegu og guðlegu lögmáli.
Því aðrar leiðir eru færar fyrir
stjórnvöld að leysa þau vandamál sem fólksfjölgun
veldur - það er að segja, að sett séu lög um
aðstoð við fjölskyldur um viðunandi fræðslu til
að siðferðislögmálið og frelsi borgaranna sé
í heiðri haft.
Vér gerum oss að fullu grein fyrir þeim
vandamálum sem opinber yfirvöld standa frammi fyrir og
þá sérstaklega í
þróunarlöndum. Vér höfðum raunar í
huga réttmætar áhyggjur sem hvíla á
þeim þegar vér birtum heimsbréf vort Populorum
Progressio. En nú tökum vér undir með forvera
vorum Jóhannesi XXIII sællar minningar, og gerum orð hans
að vorum: "Engin yfirlýsing er varðar
vandamálið og engin lausn þess er viðunandi sem hefur
virðingu mannsins að engu og byggist eingöngu á efnislegri
hugsun um manninn sjálfan og líf hans. Til að
úrlausn þessa máls verði möguleg verður að
ná til félagslegra og efnahagslegrar framþróunar
bæði hvað varðar einstaklinginn og allt samfélagið
og virða og halda á lofti sönnum mannlegum
gildum".26 Enginn getur, án þess að ganga
alvarlega gegn réttlætinu, gert guðlega forsjón
ábyrga fyrir því sem virðist vera afleiðing
misheppnaðrar stefnu stjórnvalda, afleiðing félagslegs
óréttlætis, afleiðing síngjarnrar
ásóknar í veraldlega hluti, og að lokum afleiðing
vítaverðrar vanrækslu við að taka það
frumkvæði og þá ábyrgð sem þarf til
að almenningur og börn njóti meiri lífsgæða.
27 Ef einungis öll aflögufær stjórnvöld
færu að dæmi þeirra sem nú þegar eru að
gera góða hluti og tækju sig til við að hleypa
nýju blóði í þær framkvæmdir sem
þau eru skuldbundin til að gera! Það má ekki
slá slöku við framkvæmdaráætlanir um
gagnkvæma og alhliða aðstoð þjóða á
milli. Vér höfum þá trú að á
þessu sviði sé nær ótakmarkaður vettvangur
fyrir göfugar alþjóðastofnanir að starfa á.
|