Table of Contents | Words: Alphabetical - Frequency - Inverse - Length - Statistics | Help | IntraText Library
Paulus PP. VI
Humanae Vitae

IntraText CT - Text

  • III. hluti KIRKJAN VÍSAR VEGINN
    • 25
Previous - Next

Click here to hide the links to concordance

Til kristinna eiginmanna og eiginkvenna
 25Og snúum vér oss sérstaklega til sona vorra og dætra, þeirra sem Guð hefur framar öðrum kallað til þjóna sér með því stofna til hjónabandsSamfara því kirkjan gerir börnum sínum grein fyrir þeim órjúfanlegum skilyrðum sem lögmál Guðs kveður á um, er hún jafnframt rödd hjálpræðisins og fyrir sakramentin sviptir hún upp á gátt leiðum náðarinnar en fyrir hana er maðurinn gerður nýrri sköpun sem samsvarar í kærleika og sönnu frelsi áformum skapara hans og frelsara, og fær einnig upplifað hve ljúft ok Krists er. 31
 Í auðmjúkri hlýðni við rödd kirkjunnar, ættu kristin hjón hafa í huga köllun sína til lifa kristilegu lífi, köllun sem þau öðlast í skírninni og hefur verið staðfest á og á skýrari hátt með sakramenti hjónabandsinsÞví fyrir þetta sakramenti eru þau styrkt og, vér getum nánast sagt, vígð til uppfylla af trúmennsku skyldur sínar, til láta köllun sína skila sér til fulls og til bera Kristi vitni, eins og þeim sæmir, frammi fyrir heiminum. 32 Því Drottinn hefur falið þeim það verkefni gera körlum og konum sýnilegan þann heilagleika og fögnuð sem felst í lögmálinu, er sameinar á órjúfanlegan hátt ást þeirra hvors til annars og þá samvinnu sem þau eiga með kærleika Guðs, hans sem er höfundur mannlegs lífs.
 Vér höfum eigi í huga leiða hjá oss í þögn þá erfiðleika, sem á stundum eru mjög miklir og kristin hjón ekki umflúiðÞeim eins og oss öllum, "er hliðið þröngt og vegurinn mjór, er liggur til lífsins".33 Engu síður er það einmitt vonin um þetta líf sem lýsir upp leiðina eins og skínandi ljós þegar þau, sterk í anda, leitast við lifa "hóglátlega, réttvíslega og guðrækilega í heimi þessum"34 fullviss þess "heimurinn í núverandi mynd líður undir lok".35
 Það er af þessari ástæðu eiginmaður og eiginkona ættu axla þær byrðar sem þeim hafa verið færðar og gera það sjálfviljug, styrkt af trúnni og voninni sem "bregst oss ekki, því kærleika Guðs er úthellt í hjörtum vorum fyrir Heilagan Anda, sem oss er gefinn".36 Þau skulu síðan biðja Guð innilega og án afláts og framar öllu skulu þau teyga djúpt náð og kærleika frá þeirri óþrjótandi lind sem er altarissakramentiðEf syndin hins vegar heldur þeim í fjötrum sínum ættu þau ekki örvæntaÞau ættu heldur af auðmýkt og þrautseigju leita miskunnar Guðs sem iðrunarsakramentið veitir af gnægðÁ þann hátt er það víst þau munu verða fær um þeirri fullkomnun hjónabandsins, sem heilagur Páll postuli setur fram með þessum orðum:  "Þér menn, elskið konur yðar eins og Kristur elskaði kirkjuna...Þannig skulu eiginmennirnir elska konur sínar eins og eigin líkami, sem elskar konu sína, elskar sjálfan sigEnginn hefur nokkru sinni hatað eigið hold, heldur elur hann það og annast eins og Kristur kirkjuna...Þetta er mikill leyndardómurÉg hef í huga Krist og kirkjunaEn sem sagt, þér skuluð hver og einn elska eiginkonu yðar eins og sjálfa yður, en konan beri lotningu fyrir manni sínum".37




31 Sbr. Mt. 11:30.


32 Sbr. annað Vatíkanþingið, Gaudium et spes, n. 48, AAS 58 (1966), bls. 1067-1069; Lumen gentium, n. 35, AAS 57 (1965), bls. 40-41.


33 Mt. 7:14; sbr. Heb. 12:11.


34 Tít. 2:12


35 1Kor. 7:31.


36 Róm. 5:5.


37 Ef. 5:25, 28-29, 32-33.





Previous - Next

Table of Contents | Words: Alphabetical - Frequency - Inverse - Length - Statistics | Help | IntraText Library

Best viewed with any browser at 800x600 or 768x1024 on Tablet PC
IntraText® (V89) - Some rights reserved by EuloTech SRL - 1996-2007. Content in this page is licensed under a Creative Commons License