Lokabón
31. Virðulegu bræður, kæru synir og
allir menn sem hafa góðan vilja, sannarlega höfum vér
boðað yður til mikilla starfa á sviði menntunar,
framþróunar og kærleika. Og í þessu
styðjumst vér við óbifanlega kenningu kirkjunnar,
kenninguna sem eftirmaður Péturs ásamt bræðrum hans
á hinum kaþólsku biskupsstólum varðveitir og
túlkar af trúmennsku. Og vér erum þess
fullvissir að þetta verk vort, sem sannarlega er göfugt, muni
færa blessun bæði heiminum og kirkjunni. Því
maðurinn getur ekki öðlast hina sönnu sælu, sem hann
þráir með öllum mætti anda síns, nema hann
fylgi því lögmáli sem hinn almáttugi Guð
hefur letrað í eigið eðli hans. Þessu
lögmáli verður að fylgja eftir af visku og
kærleika. Við þetta mikla starf köllum vér
yfir yður öll og þá sérstaklega yður sem eru
gift, gnægð himneskrar náðar frá Guði alls
heilagleika og miskunnar, og vér með ánægju veitum
með postullegri blessun vorri.
Birt frá stóli
heilags Péturs í Róm 25.
júlímánaðar á Jakobsmessu árið 1968,
sjötta stjórnarári voru.
Páll PP. VI.
|