I. hluti
NÝ HLIÐ Á VANDANUM OG
UMFANG KENNIVALDSINS
Ný skilgreining á vandanum
2. Breytingarnar sem hafa átt sér stað eru
í raun afar mikilvægar og snerta ýmis
vandamál. Í fyrsta lagi er það spurningin um
stöðuga fólksfjölgun, sem margir óttast að
aukist svo mjög að auðlindir heimsins nái ekki að
standa undir fjölguninni með þeim afleiðingum, að margar
fjölskyldur og þróunarlönd verði að
líða enn meiri skort en þekkist í dag.
Þessi staðreynd getur hæglega komið yfirvöldum til
að grípa til róttækra aðgerða til að koma
í veg fyrir slíka hættu. Sú staðreynd er
einnig fyrir hendi að auk krafna um bætta vinnu- og
heimilisaðstæður, eru gífurlegar kröfur gerðar
á sviði mennta- og efnahagsmála, sem veldur því
að nú á tímum verður æ erfiðara
að sjá þannig fyrir stórri fjölskyldu að
hún njóti þeirra lífsgæða sem eru
gerðar kröfur um.
Það er ennfremur augljóst, að með aukinni
virðingu konunnar og auknum skilningi á stöðu hennar
í samfélaginu hefur gildi kærleikans í
hjónabandinu vaxið svo og mikilvægi náins sambands
hjóna í ljósi þessa kærleika.
En merkilegasta breytingin hefur átt sér stað í
þeirri undraverðu framþróun mannsins að virkja og
koma reglu á náttúruöflin og sem hefur náð
því stigi að nú kappkostar hann að ná
stjórn á öllum þáttum eigin lífs - yfir
líkama, huga og tilfinningum, yfir félagslífi og jafnvel
yfir því lögmáli sem stjórnar því
hvernig nýtt líf myndast.
|