Table of Contents | Words: Alphabetical - Frequency - Inverse - Length - Statistics | Help | IntraText Library
Paulus PP. VI
Humanae Vitae

IntraText CT - Text

  • I. hluti NÝ HLIÐ Á VANDANUM OG UMFANG KENNIVALDSINS
    • 6
Previous - Next

Click here to show the links to concordance

Svar kennivaldsins
 6.  Það verður að hafa í huga að vér gátum ekki litið á niðurstöður nefndarinnar sem endanlegar og bindandi fyrir oss.  Nefndin hafði ekki það hlutverk að leysa oss undan þeirri ábyrgð að kanna gaumgæfilega þá alvarlegu spurningu sem upp hafði komið.  Það bar oss að gera og ekki síst vegna þess að nefndin komst ekki að sameiginlegri niðurstöðu um hvaða siðferðisreglur ættu að gilda.  Það var brýn nauðsyn vegna þess að viss viðhorf höfðu komið fram til lausnar spurningunni, sem höfðu að geyma markmið sem voru ekki í samræmi við staðfastar siðferðiskenningar kirkjunnar um hjónabandið.
 Vér höfum nú farið gaumgæfilega yfir þau gögn sem oss hafa borist og kannað allt málið heilshugar.  Jafnframt höfum vér beðið stöðugt til Guðs.  Því munum vér, í því umboði sem vér höfum frá Kristi, gefa svar vort við þeim mörgu alvarlegu spurningum er varða mál þetta.
 




Previous - Next

Table of Contents | Words: Alphabetical - Frequency - Inverse - Length - Statistics | Help | IntraText Library

Best viewed with any browser at 800x600 or 768x1024 on Tablet PC
IntraText® (V89) - Some rights reserved by EuloTech SRL - 1996-2007. Content in this page is licensed under a Creative Commons License