Table of Contents | Words: Alphabetical - Frequency - Inverse - Length - Statistics | Help | IntraText Library
Paulus PP. VI
Humanae Vitae

IntraText CT - Text

  • II. hluti SPURNINGAR UM KENNISETNINGU
    • 7
Previous - Next

Click here to show the links to concordance

II. hluti
SPURNINGAR UM KENNISETNINGU

Heildarmynd af manninum
 7.  Spurningin um fæðingu barna er, eins og hver önnur spurning, sem snertir mannlegt líf, of stór til að henni sé hægt að svara innan takmarkaðra greina líffræði, sálarfræði, lýðfræði eða félagsfræði.  Það er maðurinn í heild sinni og margslungin ábyrgð hans sem verður að gaumgæfa, og ekki má nema staðar við það sem telst vera náttúrulegt og bundið við þennan heim, heldur verður einnig að ígrunda hið yfirnáttúrlega og eilífa.  Og þar sem margir hafa, í tilraunum sínum til að réttlæta tilbúnar getnaðarvarnir, höfðað til þess sem kærleikur hjónabandsins krefst og þess sem nefnt hefur verið "ábyrgt foreldrahlutverk", verður að skilgreina þessa tvo þætti hjónabandsins nákvæmlega og brjóta þá til mergjar.  Þetta er það sem vér ætlum oss að gera með sérstakri tilvísun til þess sem annað Vatíkanþingið kenndi, með fullri heimild, í hirðisskjalinu Gaudium et spes.




Previous - Next

Table of Contents | Words: Alphabetical - Frequency - Inverse - Length - Statistics | Help | IntraText Library

Best viewed with any browser at 800x600 or 768x1024 on Tablet PC
IntraText® (V89) - Some rights reserved by EuloTech SRL - 1996-2007. Content in this page is licensed under a Creative Commons License