Table of Contents | Words: Alphabetical - Frequency - Inverse - Length - Statistics | Help | IntraText Library
Paulus PP. VI
Humanae Vitae

IntraText CT - Text

  • II. hluti SPURNINGAR UM KENNISETNINGU
    • 10
Previous - Next

Click here to show the links to concordance

Ábyrgt foreldrahlutverk
 10.  Kærleikur hjónabandsins krefst þess af hjónunum, að þau geri sér að fullu grein fyrir skyldum sínum í sambandi við foreldrahlutverkið og ábyrgð þess og lögð er rík áhersla á nú á dögum eins og rétt er.  En þá verður einnig að ríkja réttur skilningur á því hvað í þessu felst.  Það verður að líta á málið með hliðsjón af hinum mismunandi röksemdum, sem þó tengjast innbyrðis, og hvað í þeim telst réttlætanlegt.
 Ef vér lítum fyrst á málið út frá hinu líffræðilega ferli, þá felst ábyrgt foreldrahlutverk í því að þekkja það ferli og virða það.  Fyrir getnaðareiginleika sinn fær maðurinn skilið lögmál líffræðinnar sem felur einnig í sér mannlegt eðli. 9
 Ef vér hins vegar könnum eðlislægar langanir og tilfinningar mannsins, þá felst í ábyrgu foreldrahlutverki að sýna styrk til að dómgreind og vilja sé beitt við að hafa stjórn á þeim.
 En ef vér víkjum að öðrum þáttum, sem við eiga, eins og líkamlegar, efnahagslegar, sálfræðilegar og félagslegar aðstæður, þá sýna þau hjón ábyrgt foreldrahlutverk sem af dyggð og örlæti ákveða að setja á stofn stóra fjölskyldu, eða þau sem vegna óviðráðanlegra aðstæðna og með því að halda í heiðri siðferðislögmálið, ákveða að eignast ekki fleiri börn um stund eða jafnvel um óákveðinn tíma.
 Innan ramma þeirrar skilgreiningar sem vér notum yfir "ábyrgt foreldrahlutverk" ber jafnframt að geta gífurlega mikilvægs atriðis, sem hefur meiri og dýpri þýðingu í þessu sambandi.  Er þá vísað til þess hlutlæga siðferðis sem Guð kom á - siðferðis sem hver einlæg samviska fær skilið á réttan hátt.  Þetta þýðir, að þau hjón sem vilja sýna "ábyrgt foreldrahlutverk" verða að hafa forgangsröðina rétta og gangast við skyldum sínum gagnvart Guði, þeim sjálfum, fjölskyldum sínum og samfélaginu.
 Af þessu leiðir að þau eru ekki frjáls til að gera það sem þau lystir í þjónustu sinni við að geta nýtt líf, að það sé lögmætt fyrir þau að ákveða, burt séð frá öðrum forsendum, hvaða stefnu þeim beri að taka.  Þvert á móti eru þau bundin af því að tryggja það að verknaður þeirra sé í samræmi við vilja Guðs, skapara vors.  Það er grundvallareðli hjónabandsins og hjónalífsins, sem leiðir þetta í ljós og stöðug kenning kirkjunnar staðfestir. 10




9 Sbr. heilagur Tómas, Summa Theologica, I-II, sp. 94, 2. grein.


10 Sbr. annað Vatíkanþingið, Gaudium et spes, n. 50-51, AAS 58 (1968), bls. 1070-1073.





Previous - Next

Table of Contents | Words: Alphabetical - Frequency - Inverse - Length - Statistics | Help | IntraText Library

Best viewed with any browser at 800x600 or 768x1024 on Tablet PC
IntraText® (V89) - Some rights reserved by EuloTech SRL - 1996-2007. Content in this page is licensed under a Creative Commons License