Table of Contents | Words: Alphabetical - Frequency - Inverse - Length - Statistics | Help | IntraText Library
Paulus PP. VI
Humanae Vitae

IntraText CT - Text

  • II. hluti SPURNINGAR UM KENNISETNINGU
    • 11
Previous - Next

Click here to show the links to concordance

Virðing fyrir eðli og tilgangi hjónabandsins
 11.  Kynlíf, þegar hjón sameinast hvort öðru á náinn og eðlilegan hátt, og þar sem líf kviknar, er, eins og annað Vatíkanþingið kallaði það, "heiðvirt og gott".11 Ennfremur er það á allan hátt lögmætt þó að fyrirsjáanlegt sé að það verði ekki frjósamt vegna aðstæðna sem hjónin ráða ekki við.  Hina eðlislægu athöfn kynlífsins, sem er hluti af tjáningu hjónanna og styrkir sameiningu þeirra, á ekki að bæla niður.  Eins og reynslan sýnir oss er það staðreynd að nýtt líf kviknar ekki við öll kynmök.  Guð hefur í visku sinni komið þeirri skipan á í náttúrulögmálinu, að frjóvgun verður með þeim hætti að hæfilegt bil milli fæðinga er eðlilegur hluti lögmálsins.  Engu að síður hefur kirkjan í viðleitni sinni til að fá menn til að fara eftir þeim lífsreglum, sem fram koma í náttúrulögmálinu og hún túlkar stöðugt með kenningu sinni, krafist þess afdráttarlaust að hvergi megi hindra náttúrulegan eiginleika til getnaðar í neinum athöfnum hjónabandsins. 12




11 Sbr. sama rit, n. 49, AAS 58 (1966), bls. 1070.


12 Sbr. heimsbréf Píusar XI, Casti Connubii, AAS 22 (1930), bls. 560; ávarp Píusar XII til ljósmæðra, AAS 43 (1951) bls. 843.





Previous - Next

Table of Contents | Words: Alphabetical - Frequency - Inverse - Length - Statistics | Help | IntraText Library

Best viewed with any browser at 800x600 or 768x1024 on Tablet PC
IntraText® (V89) - Some rights reserved by EuloTech SRL - 1996-2007. Content in this page is licensed under a Creative Commons License