Table of Contents | Words: Alphabetical - Frequency - Inverse - Length - Statistics | Help | IntraText Library
Paulus PP. VI
Humanae Vitae

IntraText CT - Text

  • II. hluti SPURNINGAR UM KENNISETNINGU
    • 12
Previous - Next

Click here to show the links to concordance

Kenning sem samræmist mannlegri skynsemi
 12.  Þessi tiltekna kenning, sem kennivald kirkjunnar iðulega gerir ljósa, er byggð á þeirri órjúfanlegu samtengingu sem er milli mikilvægis samlífs og mikilvægis getnaðar en hvort tveggja er eðlislægur hluti hjónabandsins.  Þessa órjúfanlegu samtengingu sem Guð hefur komið á, má maðurinn ekki rjúfa af eigin frumkvæði.
 Ástæðan er sú, að jafnframt því að hjúskaparskyldan byggist í grundvallaratriðum á sameiningu hjónanna í sínu nánasta samlífi opinberar hún lögmál, sem sannarlega er ritað í eðli karls og konu, að geta af sér nýtt líf.  Og ef hlúð er að þessum ómissandi þáttum, samlífi og getnaði, mun hjónalífið að fullu viðhalda gagnkvæmum kærleika sínum og njóta þeirrar blessunar að öðlast þá miklu ábyrgð sem maðurinn er kallaður til og felst í foreldrahlutverkinu.  Vér trúum því að samtíðarmenn vorir skilji, að þessi kenning er í samræmi við mannlega skynsemi.




Previous - Next

Table of Contents | Words: Alphabetical - Frequency - Inverse - Length - Statistics | Help | IntraText Library

Best viewed with any browser at 800x600 or 768x1024 on Tablet PC
IntraText® (V89) - Some rights reserved by EuloTech SRL - 1996-2007. Content in this page is licensed under a Creative Commons License