Table of Contents | Words: Alphabetical - Frequency - Inverse - Length - Statistics | Help | IntraText Library
Paulus PP. VI
Humanae Vitae

IntraText CT - Text

  • II. hluti SPURNINGAR UM KENNISETNINGU
    • 13
Previous - Next

Click here to show the links to concordance

Trúfesti við áform Guðs
 13.  Menn hafa réttilega bent á, að það sýnir ekki sannan kærleiksanda að neyða annan aðilann til að uppfylla hjúskaparskyldur sínar án tillits til aðstæðna hans eða hennar eða persónulegra og eðlilegra óska í því sambandi.  Það gengur gegn eðlilegu siðferði eins og það birtist í hinu nána samlífi hjónanna.  Á sama hátt verða hinir sömu að viðurkenna, ef þeir íhuga málið nánar, að sá verknaður gagnkvæms kærleika sem hindrar boðleið getnaðar, gerir að engu áform Guðs skapara vors, sem með lögmáli lífsins eru hluti af gagnkvæmu kærleiksambandi hjóna.  Það gengur þvert gegn vilja höfundar alls lífs.  Því er það að ef þessar gjafir Guðs eru iðkaðar og þær sviptar, þó ekki væri nema að litlu leyti, merkingu sinni og ætlunarverki, lítilsvirðir það eðli þeirra sem hlut eiga að máli og á það jafnt við karl sem konu.  Verknaðurinn heggur að rótum sambands þeirra og er því í andstöðu við áform Guðs og heilagan vilja hans.  Þau hjón sem hins vegar njóta kærleiksgjafa hjónabandsins og virða lögmál náttúrunnar varðandi getnað gera sér það ljóst að þau drottna ekki yfir uppsprettu lífsins heldur þjóna þau þeirri fyrirætlun sem skaparinn kom á.  Á sama hátt og maðurinn hefur yfir höfuð ekki ótakmörkuð yfirráð yfir eigin líkama eru sérstakar ástæður fyrir því hvers vegna hann hefur ekki slík yfirráð yfir getnaðarfærum sínum því þeirra þáttur snertir náttúruna sjálfa í sköpun hennar á nýju lífi en upptök þess eru hjá Guði.  Allir menn verða að viðurkenna þá staðreynd, eins og fyrirrennari vor Jóhannes páfi XXIII rifjaði upp, að mannlegt líf er heilagt "þar sem upphaf þess er að leita í skipan Guðs".13




13 Sbr. heimsbréf Jóhannesar XXIII, Mater et Magistra, AAS 53 (1961), bls. 447.





Previous - Next

Table of Contents | Words: Alphabetical - Frequency - Inverse - Length - Statistics | Help | IntraText Library

Best viewed with any browser at 800x600 or 768x1024 on Tablet PC
IntraText® (V89) - Some rights reserved by EuloTech SRL - 1996-2007. Content in this page is licensed under a Creative Commons License