Table of Contents | Words: Alphabetical - Frequency - Inverse - Length - Statistics | Help | IntraText Library
Paulus PP. VI
Humanae Vitae

IntraText CT - Text

  • II. hluti SPURNINGAR UM KENNISETNINGU
    • 17
Previous - Next

Click here to show the links to concordance

Alvarlegar afleiðingar tilbúinna getnaðarvarna
 17.  Ábyrgir menn munu verða langtum sannfærðari um sannleika kenningarinnar, sem kirkjan heldur á lofti í þessu máli, ef þeir íhuga afleiðingar þeirra aðferða og áforma þegar náttúrulegar aðferðir eru ekki notaðar til að koma í veg fyrir fjölgun fæðinga.  Þeir skulu fyrst íhuga hve auðveldlega sú leið getur boðið heim hættunni á hjúskaparbroti og hnignun siðferðis.  Það þarf ekki að búa yfir mikilli reynslu til að skynja að fullu mannlegan veikleika og skilja að menn - og þá sérstaklega þeir yngri sem eru opnir fyrir freistingum - þurfa á hvatningu að halda til að halda í heiðri siðferðislögmálið og að það er beinlínis syndsamlegt að auðvelda þeim að brjóta lögmálið.  Annað er það sem gefur tilefni til að vera á varðbergi.  Sá karlmaður, sem venst því að nota getnaðarvarnir á það á hættu að virðing hans fyrir konunni minnki.  Með því hættir hann að virða líkamlega og andlega velferð konunnar og í hans augum verður hún einungis tæki til að fullnægja þörfum hans.  Hún verður ekki lengur sá lífsförunautur sem hann á að umvefja umhyggju og ástúð.
 Að lokum ættum vér að íhuga alvarlega afleiðingar þess að þau opinberu yfirvöld, sem hafa lítinn skilning á brýnni nauðsyn lögmáls siðferðis, fái stjórn þessara mála í hendur.  Getur nokkur álasað þeim stjórnvöldum, sem eru að glíma við vandamál heillar þjóðar, ef þau grípa til sömu ráða og þeirra sem talin eru lögmæt fyrir hjón við úrlausn tiltekinna fjölskylduvandamála?  Hvað fær komið í veg fyrir að yfirvöld grípi til þeirra getnaðarvarnaraðferða sem þau telja árangursríkust?  Þau gætu jafnvel þvingað þeirri leið á alla ef þau teldu það nauðsynlegt.  Það gæti þess vegna vel svo farið að þegar fólk, hvort sem um er að ræða einstaklinga, fjölskyldur eða samfélagið, gerir allt sem það getur til að sniðganga lögmál Guðs, þegar það veldur því erfiðleikum, að þá láti það í hendur yfirvöldum vald til að blanda sér í einkamál hjóna og önnur mál sem varðar persónulega ábyrgð þeirra.
 Ef vér teljum þess vegna ekki að getnaður sé háður geðþóttaákvörðun mannsins, verðum vér að fallast á að manninum eru skorður settar, sem ber að virða, varðandi eigin líkama og náttúrulegt hlutverk hans.  Það skal sagt, að þetta er takmörkun sem enginn, hvort heldur er einstaklingur eða opinber yfirvöld, fær breytt með lögmætum hætti.  Slíkum takmörkunum er beinlínis komið á vegna þeirrar virðingar sem mannslíkamanum ber og náttúrulegu hlutverki hans og í ljósi þeirra grundvallatriða sem vér höfum minnst á fyrr og samkvæmt réttum skilningi á "reglunni um heildarhagsmuni" sem fyrirrennari vor Píus páfi XII kom á framfæri. 21




21 Sbr. ávarp Píusar XII til félags þvagfærasérfræðinga, AAS 45 (1953), bls. 674-675; til leiðtoga og félaga í ítölskum samtökum til söfnunar gegn augnsjúkdómum og ítalska blindrafélagsins, AAS 48 (1956), bls. 461-462.





Previous - Next

Table of Contents | Words: Alphabetical - Frequency - Inverse - Length - Statistics | Help | IntraText Library

Best viewed with any browser at 800x600 or 768x1024 on Tablet PC
IntraText® (V89) - Some rights reserved by EuloTech SRL - 1996-2007. Content in this page is licensed under a Creative Commons License