Table of Contents | Words: Alphabetical - Frequency - Inverse - Length - Statistics | Help | IntraText Library
Paulus PP. VI
Humanae Vitae

IntraText CT - Text

  • III. hluti KIRKJAN VÍSAR VEGINN
    • 22
Previous - Next

Click here to show the links to concordance

Bænarósk til þeirra sem sjá um kennslu
 22.  Þessar íhuganir gefa oss tilefni til að ávarpa þá sem eru við kennslu og alla þá sem hafa réttindum og skyldum að gegna varðandi sameiginlega velferð samfélagsins.  Vér viljum beina athygli þeirra að því, að nauðsynlegt er að skapa andrúmsloft sem stuðlar að því að fleiri haldi skírlífi í heiðri en það hefur í för með sér að sannarlegt frelsi mun ríkja yfir taumleysi og staðinn verður vörður um þá viðmiðun sem gildir í siðferðislögmálinu.
 Því ber að fordæma opinberlega og einum rómi allt það sem fjölmiðlun í nútíma samfélagi stuðlar að til að vekja upp í mönnum auvirðilegar ástríður og hvetja til lægri siðferðislegs staðals.  Skiptir þá ekki máli hvort í hlut á skrifað orð eða ósiðsamlegt athæfi á sviði eða á hvíta tjaldinu.  Þetta eiga allir þeir að gera sem láta sér annt um að siðmenningin þróist og vilja standa vörð um einstæð gildi mannsandans.  Það er algjör fjarstæða að verja slíka niðurlægingu í nafni listar eða menningar25 eða með því að biðla til frelsis sem opinber yfirvöld hafa leyft á þessu sviði.




25 Sbr. annað Vatíkanþingið, Inter Mirifica, n. 6-7, AAS 56 (1964), bls. 147.





Previous - Next

Table of Contents | Words: Alphabetical - Frequency - Inverse - Length - Statistics | Help | IntraText Library

Best viewed with any browser at 800x600 or 768x1024 on Tablet PC
IntraText® (V89) - Some rights reserved by EuloTech SRL - 1996-2007. Content in this page is licensed under a Creative Commons License