Table of Contents | Words: Alphabetical - Frequency - Inverse - Length - Statistics | Help | IntraText Library
Paulus PP. VI
Humanae Vitae

IntraText CT - Text

  • III. hluti KIRKJAN VÍSAR VEGINN
    • 23
Previous - Next

Click here to show the links to concordance

Til þjóðarleiðtoga
 23.  Og nú viljum vér beina máli voru til þjóðarleiðtoga, vegna þess að í þeirra höndum er mest öll ábyrgð þess að halda vörð um almenna velferð og þeir geta lagt mikið af mörkum til að viðhalda siðgæði.  Leyfið aldrei að grafið sé undan siðgæði þjóðar yðar.  Þar sem fjölskyldan er grundvallareining hvers ríkis þá látið ekki viðgangast að löggjöf sé sett, sem opnar fjölskyldum leiðir sem ganga gegn náttúrulegu og guðlegu lögmáli.  Því aðrar leiðir eru færar fyrir stjórnvöld að leysa þau vandamál sem fólksfjölgun veldur - það er að segja, að sett séu lög um aðstoð við fjölskyldur um viðunandi fræðslu til að siðferðislögmálið og frelsi borgaranna sé í heiðri haft.
 Vér gerum oss að fullu grein fyrir þeim vandamálum sem opinber yfirvöld standa frammi fyrir og þá sérstaklega í þróunarlöndum.  Vér höfðum raunar í huga réttmætar áhyggjur sem hvíla á þeim þegar vér birtum heimsbréf vort Populorum Progressio.  En nú tökum vér undir með forvera vorum Jóhannesi XXIII sællar minningar, og gerum orð hans að vorum:  "Engin yfirlýsing er varðar vandamálið og engin lausn þess er viðunandi sem hefur virðingu mannsins að engu og byggist eingöngu á efnislegri hugsun um manninn sjálfan og líf hans.  Til að úrlausn þessa máls verði möguleg verður að ná til félagslegra og efnahagslegrar framþróunar bæði hvað varðar einstaklinginn og allt samfélagið og virða og halda á lofti sönnum mannlegum gildum".26 Enginn getur, án þess að ganga alvarlega gegn réttlætinu, gert guðlega forsjón ábyrga fyrir því sem virðist vera afleiðing misheppnaðrar stefnu stjórnvalda, afleiðing félagslegs óréttlætis, afleiðing síngjarnrar ásóknar í veraldlega hluti, og að lokum afleiðing vítaverðrar vanrækslu við að taka það frumkvæði og þá ábyrgð sem þarf til að almenningur og börn njóti meiri lífsgæða. 27 Ef einungis öll aflögufær stjórnvöld færu að dæmi þeirra sem nú þegar eru að gera góða hluti og tækju sig til við að hleypa nýju blóði í þær framkvæmdir sem þau eru skuldbundin til að gera!  Það má ekki slá slöku við framkvæmdaráætlanir um gagnkvæma og alhliða aðstoð þjóða á milli.  Vér höfum þá trú að á þessu sviði sé nær ótakmarkaður vettvangur fyrir göfugar alþjóðastofnanir að starfa á.




26 Heimsbréf Jóhannesar XXIII, Mater et Magistra, AAS 53 (1961), bls. 447.


27 Sbr. heimsbréf Páls VI, Populorum Progressio, AAS 59 (1967), bls. 281-284.





Previous - Next

Table of Contents | Words: Alphabetical - Frequency - Inverse - Length - Statistics | Help | IntraText Library

Best viewed with any browser at 800x600 or 768x1024 on Tablet PC
IntraText® (V89) - Some rights reserved by EuloTech SRL - 1996-2007. Content in this page is licensed under a Creative Commons License