Table of Contents | Words: Alphabetical - Frequency - Inverse - Length - Statistics | Help | IntraText Library
Paulus PP. VI
Humanae Vitae

IntraText CT - Text

  • III. hluti KIRKJAN VÍSAR VEGINN
    • 28
Previous - Next

Click here to show the links to concordance

Til presta
 28.  Og nú kæru synir, þér sem eruð prestar og sem sakir þess helga embættis sem þér gegnið, gefið ráð og eruð andlegir leiðbeinendur hvort heldur um er að ræða einstaklinga, konur eða karla, eða fjölskyldur, til yðar snúum vér oss með miklu trausti.  Því að það er meginskylda yðar - og þá tölum vér sérstaklega til þeirra sem kenna kristilega siðfræði - að útskýra kenningar kirkjunnar um hjónabandið.  Það skal gert af fullri hreinskilni og án þess að nokkuð sé dregið undan.  Í starfi yðar sem þjónar kirkjunnar verðið þér að ganga á undan með góðu fordæmi og sýna af lífi og sál einlægna hlýðni við kennivald kirkjunnar.  Því eins og yður er kunnugt, þá njóta æðstu sálnahirðar kirkjunnar sérstakrar uppljómunar Heilags Anda við að kenna sannleikann. 39 Fyrir það eruð þér bundnir slíkri hlýðni en ekki vegna þeirra röksemda sem þeir leggja fram.  Ekki ætti það að fara fram hjá yður að ef takast á að varðveita sálarfrið mannsins og sameiningu kristinna manna þá er það mjög mikilvægt að í kristilegri siðfræði sem og trúfræði hlýði allir kennivaldi kirkjunnar og tali þar allir einni röddu.  Með einlægu hjarta gerum vér því angistarfull orð heilags Páls postula að vorum:  "En ég áminni yður, bræður, í nafni Drottins vors Jesú Krists, að þér séuð allir samhuga og ekki séu flokkadrættir á meðal yðar, heldur að þér séuð fullkomlega sameinaðir í sama hugarfari og í sömu skoðun." 40




39 Sbr. annað Vatíkanþingið, Lumen gentium, n. 25, AAS 57 (1965), bls. 29-31.


40 1Kor. 1:10.





Previous - Next

Table of Contents | Words: Alphabetical - Frequency - Inverse - Length - Statistics | Help | IntraText Library

Best viewed with any browser at 800x600 or 768x1024 on Tablet PC
IntraText® (V89) - Some rights reserved by EuloTech SRL - 1996-2007. Content in this page is licensed under a Creative Commons License