Table of Contents | Words: Alphabetical - Frequency - Inverse - Length - Statistics | Help | IntraText Library
Paulus PP. VI
Humanae Vitae

IntraText CT - Text

  • III. hluti KIRKJAN VÍSAR VEGINN
    • 29
Previous - Next

Click here to show the links to concordance

Samúð með syndurum
 29.  Það ber ennfremur fagurt vitni um kærleika til mannsins að ekkert sé dregið undan í að kenna hjálpræði Krists, og það sé gert með umburðarlyndi.  Þar hefur Drottinn sjálfur gefið fordæmi í samskiptum sínum við menn.  Hann kom ekki til að dæma heiminn, heldur til að heimurinn mætti frelsast fyrir hann. 41 Beitti Kristur sér ekki af fullum þunga gegn syndinni en var þolinmóður og fullur miskunnsemdar gagnvart syndurum?
 Hjón sem eiga í erfiðleikum í lífi sínu verða því að finna fyrir ímynd kærleika frelsarans í hjarta og máli prestsins.
 Vér berum fullt traust til yðar nú þegar vér ávörpum yður kæru synir því vér erum þess fullvissir að samfara því að Helgur Andi Guðs er nálægur í kennivaldinu sem kunngjörir örugga kennisetningu, uppljómar Andinn jafnframt hjörtu hinna trúuðu og býður þeim að gefa samþykki sitt.  En þér eigið að kenna hjónum hvernig á að biðja og búa þau undir að meðtaka oftar í trúarsannfæringu altarissakramentið og iðrunarsakramentið.  Þau mega aldrei örvænta þrátt fyrir veikleika sinn.




41 Sbr. Jh. 3:17.




Previous - Next

Table of Contents | Words: Alphabetical - Frequency - Inverse - Length - Statistics | Help | IntraText Library

Best viewed with any browser at 800x600 or 768x1024 on Tablet PC
IntraText® (V89) - Some rights reserved by EuloTech SRL - 1996-2007. Content in this page is licensed under a Creative Commons License