Til biskupa
30. Og nú þegar líður að lokum
þessa heimsbréfs vors, snúum vér oss til yðar
með lotningu og kærleika, kæru og heiðruðu
bræður á biskupsstóli, sem vér deilum með
á náinn hátt andlegri umönnun Guðs barna.
Vér bjóðum yður öllum og sárbænum
yður, að veita forystu prestum yðar sem aðstoða yður
í hinni helgu þjónustu, hinum trúuðu í
biskupsdæmi yðar, og að þér helgið yður af
öllum kröftum og án tafar því að standa
vörð um helgi hjónabandsins og það sem betra er,
að leiða hjónabandslífið til þeirrar
fullkomnunar sem hæfir manninum og kristinni trú hans.
Þér skuluð líta á þetta ætlunarverk
yðar sem hið mikilvægasta og ábyrgðarfyllsta, sem
þér eruð skuldbundnir til að inna af hendi nú
á dögum. Eins og þér vitið kallar
það á samhæfðar aðgerðir í
prestþjónustu á öllum sviðum mannlegs lífs,
efnahags, menningar og félagslegra þátta.
Því ef aðgerðir eiga sér stað á
öllum þessum sviðum samtímis þá verður
hið nána líf foreldra og barna þeirra ekki einungis
meira viðunandi heldur auðveldara og hamingjusamara. Allt
líf í mannlegu samfélagi mun auðgast að
bróðurkærleika og verður stöðugra af sönnum
friði þegar áætlun Guðs um heiminn, er fylgt eftir
af trúmennsku.
|