Table of Contents | Words: Alphabetical - Frequency - Inverse - Length - Statistics | Help | IntraText Library
Paulus PP. VI
Humanae Vitae

IntraText CT - Text

  • III. hluti KIRKJAN VÍSAR VEGINN
    • 31
Previous - Next

Click here to show the links to concordance

Lokabón
 31.  Virðulegu bræður, kæru synir og allir menn sem hafa góðan vilja, sannarlega höfum vér boðað yður til mikilla starfa á sviði menntunar, framþróunar og kærleika.  Og í þessu styðjumst vér við óbifanlega kenningu kirkjunnar, kenninguna sem eftirmaður Péturs ásamt bræðrum hans á hinum kaþólsku biskupsstólum varðveitir og túlkar af trúmennsku.  Og vér erum þess fullvissir að þetta verk vort, sem sannarlega er göfugt, muni færa blessun bæði heiminum og kirkjunni.  Því maðurinn getur ekki öðlast hina sönnu sælu, sem hann þráir með öllum mætti anda síns, nema hann fylgi því lögmáli sem hinn almáttugi Guð hefur letrað í eigið eðli hans.  Þessu lögmáli verður að fylgja eftir af visku og kærleika.  Við þetta mikla starf köllum vér yfir yður öll og þá sérstaklega yður sem eru gift, gnægð himneskrar náðar frá Guði alls heilagleika og miskunnar, og vér með ánægju veitum með postullegri blessun vorri.

 Birt frá stóli heilags Péturs í Róm 25. júlímánaðar á Jakobsmessu árið 1968, sjötta stjórnarári voru.

Páll PP. VI.






Previous - Next

Table of Contents | Words: Alphabetical - Frequency - Inverse - Length - Statistics | Help | IntraText Library

Best viewed with any browser at 800x600 or 768x1024 on Tablet PC
IntraText® (V89) - Some rights reserved by EuloTech SRL - 1996-2007. Content in this page is licensed under a Creative Commons License