Table of Contents | Words: Alphabetical - Frequency - Inverse - Length - Statistics | Help | IntraText Library
Congregation for the Doctrine of the Faith
Dominus Iesus

IntraText CT - Text

  • I. Fylling og endanleiki opinberunar Jesú Krists
Previous - Next

Click here to hide the links to concordance

I. Fylling og endanleiki opinberunar Jesú Krists

Gegn þeirri kenningu auðkenni opinberunar Jesú Krists takmarkað,
ófullgert eða ófullkomið og til uppfyllingar því sem finna í öðrum
trúarbrögðum endurtekur yfirlýsingin kennslu kaþólskrar trúar um fulla og
algera opinberun á hjálpræðisleyndardómi Guðs í Jesú Kristi. Þar sem Jesús
er sannur Guð og sannur maður eru orð hans og athafnir fullgerð og endanleg
opinberun á leyndardómi Guðs, jafnvel þótt djúp þess leyndardóms séu í
sjálfu sér yfirskilvitleg og ótæmandi. Þar af leiðandi, enda þótt það
játað önnur trúarbrögð endurspegli ósjaldan ljósbroti þess sannleika sem
upplýsir alla menn (sbr. annað Vatíkanþingið, yfirlýsingin "Nostra Aetate",
2), ítrekar yfirlýsingin hvergi finna innblásinn texta nema í
hinum kanónísku bókum Gamla og Nýja testamentisins vegna þess þær eru
innblásnar af Heilögum Anda, hafa Guð höfundi og kenna staðfastlega,
einlæglega og án villu sannleikann um Guð og hjálpræði mannsins. Í
yfirlýsingunni segir ennfremur hiklaust verði gera greinarmun á milli
guðdómlegrar trúar, sem er hollusta við sannleikann eins og hann er
opinberaður af hinum eina og þríeina Guði, og trúar í öðrum trúarbrögðum
sem felst í trúarlegri reynslu er leitar enn hins endanlega sannleika og
hefur enn ekki játað Guð sem opinberar sig.




Previous - Next

Table of Contents | Words: Alphabetical - Frequency - Inverse - Length - Statistics | Help | IntraText Library

Best viewed with any browser at 800x600 or 768x1024 on Tablet PC
IntraText® (V89) - Some rights reserved by EuloTech SRL - 1996-2007. Content in this page is licensed under a Creative Commons License