Table of Contents | Words: Alphabetical - Frequency - Inverse - Length - Statistics | Help | IntraText Library
Congregation for the Doctrine of the Faith
Dominus Iesus

IntraText CT - Text

  • VI. Kirkjan og hin trúarbrögðin í sambandi við hjálpræðið
Previous - Next

Click here to hide the links to concordance

VI. Kirkjan og hin trúarbrögðin í sambandi við hjálpræðið

Í framhaldi af því sem áður hefur verið sagt er nauðsynlegt nokkur
atriði guðfræðilegrar íhugunar komi fram um það sem sem hér er til umræðu
til kanna samband kirkjunnar og hinna trúarbragðanna þegar kemur
hjálpræðinu. Umfram allt ber staðfastlega trúa því "kirkjan, hér á
jörð sem í útlegð, er nauðsynleg til sáluhjálpar; því Kristur, sem er okkur
nærverandi í líkama sínum sem er kirkjan, er hinn eini meðalgöngumaður og
vegurinn til hjálpræðis" ("Lumen Gentium", 14). Þessa kenningu ekki
setja upp á móti vilja Guðs um almennt hjálpræði heldur er "nauðsynlegt
halda utan um þessi tvö sannindi, það er segja, allt mannkyn eigi
raunverulegan möguleika á hjálpræði í Kristi og kirkjan nauðsynleg
fyrir þetta hjálpræði" ("Redemptoris Missio", 9). Því fyrir þá sem ekki
eru formlegir meðlimir kirkjunnar "er hjálpræði í Kristi aðgengilegt fyrir
mátt náðarinnar sem, þótt þeir hafi leyndardómsfullt samband við kirkjuna,
setur þá ekki formlega í kirkjuna, heldur upplýsir þá með þeim hætti sem
hæfir andlegri og efnislegri aðstöðu þeirra. Þessi náð kemur frá Kristi;
hún er árangur fórnar hans og henni er miðlað af Heilögum Anda" (sama).
        Hvað varðar veg náðar Guðs sem kemur til þess sem ekki er kristinn
einskorðaði annað Vatíkanþingið sig við yfirlýsinguna um Guð veitir hana
"eftir leiðum sem honum einum eru kunnar" (annað Vatíkanþingið, tilskipunin
"Ad Gentes", 7). Í guðfræðinni er þess leitað skilja þessa spurningu
með dýpri hætti. En samtímis er það ljóst það mundi stríða gegn
kaþólskri trú setja kirkjuna sem leið til hjálpræðis til jafns við þær
leiðir sem önnur trúarbrögð bjóða upp á.
        Vissulega geyma hinar ýmsu trúarhefðir trúarþætti sem þær bjóða upp
á og eru hluti af því sem "Andinn kemur til leiðar í hjarta mannsins og í
sögu þjóða, í menningum og trúarbrögðum" ("Redemptoris Missio", 29). Engu
síður verður ekki sagt þeir eigi sér guðdómlegt upphaf eða þeir
virki sem sáluhjálp "ex opere operato" sem er eiginlegt sakramentunum. Þar
auki ekki gleyma því taki aðrir trúarsiðir við af hjátrú eða
annarri villu (sbr. 1Kor 10:20-21) mynda þeir hindrun á vegi til
hjálpræðis.
        Með komu frelsarans Jesú Krists var það vilji Guðs kirkjan sem
hann stofnaði yrði verkfæri hjálpræðis til handa öllu mannkyni. Þessi
trúarsannleikur dregur ekki úr þeirri einlægu virðingu sem kirkjan ber
fyrir trúarbrögðum heimsins þótt hún útiloki jafnframt með gagngerum hætti
þann hugsunarhátt sem aðhyllist afskiptaleysi í trúarefnum "og einkennist
af trúarlegri afstæðishyggju sem leiðir til þeirrar sannfæringar "ein
trú ekki verri en hver önnur"" ("Redemptoris Missio", 36). Eins og
kærleikur hennar til allra manna krefst "boðar kirkjan, og er bundin af því
boða, Kristur er "vegurinn, sannleikurinn og lífið" (Jh 14:6) en í
honum verða mennirnir leita fullnustu trúarlífsins og í honum sætti Guð
allt við sig (sbr. 2Kor 5:18-19)" ("Nostra Aetate", 2).




Previous - Next

Table of Contents | Words: Alphabetical - Frequency - Inverse - Length - Statistics | Help | IntraText Library

Best viewed with any browser at 800x600 or 768x1024 on Tablet PC
IntraText® (V89) - Some rights reserved by EuloTech SRL - 1996-2007. Content in this page is licensed under a Creative Commons License