Table of Contents | Words: Alphabetical - Frequency - Inverse - Length - Statistics | Help | IntraText Library
Congregation for the Doctrine of the Faith
Dominus Iesus

IntraText CT - Text

  • II. Hið holdtekna Orð og Heilagur Andi í hjálpræðisverkinu
Previous - Next

Click here to show the links to concordance

II. Hið holdtekna Orð og Heilagur Andi í hjálpræðisverkinu

Gegn fullyrðingunni um tvöfalda fyrirhyggju hjálpræðisins - það sem tekur
til hins eilífa Orðs og væri almennt og gilti einnig utan kirkjunnar og það
sem tekur til hins holdtekna Orðs og mundi einskorðast við kristna menn -
ítrekar yfirlýsingin að um sé að ræða eina einstaka fyrirhyggju hjálpræðis
hins eina holdtekna Orðs, Jesú Krists, eingetins Sonar Föðurins.
Leyndardómur holdtekju, dauða og upprisu hans er hin eina og almenna
uppspretta hjálpræðis til handa öllu mannkyni. Reyndar hefur leyndardómur
Krists sína eiginlegu einingu sem nær frá hinu eilífa vali í Guði til
endurkomu Krists (parousia): "Áður en heimurinn var grundvallaður hefur
hann [Faðirinn] útvalið oss í Kristi" (Ef 1:4). Jesús er meðalgangarinn og
hinn almenni endurlausnari. Því er kenningin röng um fyrirhyggju hjálpræðis
Heilags Anda er hafi almennari einkenni en hið holdtekna Orð, krossfest og
upprisið. Heilagur Andi er Andi hins upprisna Krists og ekki er hægt að
staðsetja athafnir hans utan við eða samhliða Kristi. Ein er fyrirhyggja
þrenningarinnar en hún er að vilja Föðurins og uppfyllist í leyndardómi
Krists með starfi Heilags Anda.




Previous - Next

Table of Contents | Words: Alphabetical - Frequency - Inverse - Length - Statistics | Help | IntraText Library

Best viewed with any browser at 800x600 or 768x1024 on Tablet PC
IntraText® (V89) - Some rights reserved by EuloTech SRL - 1996-2007. Content in this page is licensed under a Creative Commons License