Table of Contents | Words: Alphabetical - Frequency - Inverse - Length - Statistics | Help | IntraText Library
Congregation for the Doctrine of the Faith
Dominus Iesus

IntraText CT - Text

  • V. Kirkjan: Ríki Guðs og ríki Krists
Previous - Next

Click here to show the links to concordance

V. Kirkjan: Ríki Guðs og ríki Krists

Erindi kirkjunnar er að "boða og stofna konungsríki Krists og Guðsríki
meðal allra þjóða. Hún er fyrsti frjóangi þessa guðsríkis hér á jörðu"
("Lumen Gentium", 5). Annars vegar er kirkjan "merki og verkfæri hinar
nánustu einingu við Guð og sameiningar alls mannkyns" (sama, 1) og þannig
er hún merki og verkfæri ríkisins: hún er kölluð til að kunngera og stofna
ríkið. Hins vegar er kirkjan "þjóð sem er gerð ein í sameiningu við
Föðurinn og Soninn og hinn Heilaga Anda" (sama, 4): hún er því "konungsríki
Krists sem er nú meðal okkar á leyndardómsfullan hátt" (sama, 3) og myndar
fyrstu frjóanga þess. Ýmsar guðfræðilegar skýringar má setja fram varðandi
þessar spurningar. Engu að síður er ekki hægt á nokkurn hátt að hafna eða
gera að engu hið nána samband er ríkir á milli Krists, ríkisins og
kirkjunnar. Raunar verður ríki Guðs sem við þekkjum af opinberuninni
"hvorki skilið frá Kristi né frá kirkjunni" (Jóhannes Páll II, heimsbréfið
"Redemptoris Missio", 18.).
        Samt sem áður er ríki Guðs ekki lagt að jöfnu við kirkjuna eins og
hún er í sýnilegri og félagslegri gerð sinni. Raunar má ekki undanskilja
"athafnir Krists og Andans sem eiga sér stað utan sýnilegra marka
kirkjunnar" (sama). Þegar sambandið á milli ríkis Guðs, ríkis Krists og
kirkjunnar er íhugað er nauðsynlegt að forðast einhliða áherslur eins og á
sér stað hjá þeim sem þaga um Krist þegar þeir ræða ríki Guðs eða leggja
mikla áherslu á leyndardóm sköpunarinnar en eru þögulir um leyndardóm
endurlausnarinnar vegna þess - eins og þeir segja - að þeir fá ekki skilið
Krist sem hafa ekki kristna trú en aftur á móti geta mismunandi þjóðir,
menningar og trúarbrögð fundið sér sameiginlegan grunn í einum guðdómlegum
raunveruleika, hverju nafni sem hann nefnist.             Ennfremur mun
koma að því að ríkið, eins og þeir skilja það, hafi annað hvort afar lítil
not fyrir kirkjuna eða dragi úr gildi hennar. Með þessum aðferðum er verið
að hafna því að Kristur og kirkjan hafi einn einstakan skyldleika við ríki
Guðs.




Previous - Next

Table of Contents | Words: Alphabetical - Frequency - Inverse - Length - Statistics | Help | IntraText Library

Best viewed with any browser at 800x600 or 768x1024 on Tablet PC
IntraText® (V89) - Some rights reserved by EuloTech SRL - 1996-2007. Content in this page is licensed under a Creative Commons License