36. Og
þetta er einmitt leiðin, kæru vinir, þar sem við
finnum hjálpræði okkar: Jesús Kristur, æðsti
presturinn, sem fórnfærir gjafir okkar, verndari og
hjálpari í vanmætti okkar. Það er fyrir hann
að við getum litið staðfastlega upp til himinhæða;
það er fyrir hann að við höfum frammi fyrir okkur sem
í spegli væri hina óaðfinnanlegu og háleitu
ásýnd Guðs; það er fyrir hann sem augu sálna
okkar opnast; það er fyrir hann sem fávís og
sljór hugur okkar lýkst upp eins og blóm í
sólskini; það er fyrir hann sem Drottinn hefur viljað
að við komumst í snertingu við hina eilífu
þekkingu. Hann sem er "ljómi dýrðar Guðs og er
englunum þeim mun meiri sem hann hefur að erfðum tekið
ágætara nafn en þeir." Því þannig er
skrifað: "Hann gjörir engla sína að vindum og
þjóna sína að eldslogum. En um Son sinn hefur Drottinn
sagt. Þú ert Sonur minn í dag gat ég þig;
bið þú mig og ég mun gefa þér
þjóðirnar að erfðum og endimörk jarðar að
óðali." Og aftur segir Guð við hann: "Set
þig mér til hægri handar uns ég gjöri
óvini þína að fótskör þinni."
Hverjir eru þessir óvinir? Það eru hinir
óguðlegu sem setja sig upp á móti vilja hans.
|