38. Við
skulum því láta allan líkama okkar vera
heilbrigðan í Kristi Jesú þar sem hver lýtur
náunga sínum í þeim mæli sem samræmist
þeim sérstöku gjöfum sem honum hafa verið veittar.
Hinir sterku eiga ekki að hunsa þá veiku og hinir veiku eiga
að virða þá sterku. Ríkir menn eiga að
sjá fyrir þeim fátæku og hinir fátæku
eiga að þakka Guði fyrir að hafa gefið þeim
einhvern sem sér um að uppfylla þarfir þeirra. Ef
maður býr yfir visku, þá á hann að
sýna visku sína með góðum verkum, ekki með
orðum. Og hann sem er auðmjúkur á að láta
öðrum það eftir að tala um auðmýkt hans
í stað þess að lýsa því yfir
sjálfur. Þannig á sá sem lifir líkamlegu hreinlífi
ekki að stæra sig af því, þar sem hann veit að
það var annar sem gaf honum styrk til að ástunda
hófsemi. Íhugið snöggvast, bræður
mínir, úr hverju við erum upprunalega gerðir. Hvað
vorum við á þeirri stundu er við komum fyrst í
heiminn? Höfundur okkar og skapari upphóf okkur úr myrkrinu
inn í alheim sinn eins og úr gröf væri. Jafnvel
áður en við fæddumst var hann tilbúinn með náðargjafir
sínar okkur til handa. Við skuldum honum allt og því
erum við skuldbundnir að öllu leyti að færa honum
þakkir. Honum sé
dýrðin um aldir alda, amen.
|