39. Menn sem
skortir gáfur og skilning, menn sem eru heimskir og án
lærdóms, hæða okkur og hnýta í okkur
í viðleitni þeirra að upphefja sjálfa sig. Hvað
getur dauðlegur maður í raun og veru gert? Eða hvaða
styrkur finnst í þeim sem af jörðu er fæddur?
Skrifað stendur: "Það var engin mynd fyrir augum
mínum, en til mín laumaðist rödd sem sagði: Hvað
þá? Getur nokkur maður verið hreinn fyrir Drottni eða
réttlátur í gjörðum sínum þegar hann
treystir ekki þjónum sínum og finnur galla hjá
englum sínum? Jafnvel himinninn er ekki hreinn í augum hans
hvað þá þeir sem búa í leirhúsum,
þeir sem eiga rót sína að rekja til moldarinnar.
Þeir eru marðir sundur sem mölur væri, milli morguns og
kvelds eru þeir molaðir sundur. Án þess að geta
nokkuð aðhafst, tortímast þeir gjörsamlega. Hann andar
á þá og þeir farast því enga visku hafa
þeir. Kalla þú bara og sjáðu hvort nokkur svarar
þér, hvort nokkur hinna heilögu engla birtist
þér. Því að gremjan drepur heimskingjann og
öfundin deyðir þann sem er í villu. Ég hef
séð heimskingjana festa rætur en skyndilega voru
bústaðir þeirra uppetnir. Lát börn þeirra
vera fjarlæg hjálpinni og vera troðin niður í
hliðum minni manna. Uppskeru þeirra eta hinir réttlátu
og ekki skal þeim bjargað frá ógæfu."
|