Table of Contents | Words: Alphabetical - Frequency - Inverse - Length - Statistics | Help | IntraText Library
San Clemente I
Fyrra bréf

IntraText CT - Text

  • 46
Previous - Next

Click here to hide the links to concordance

46. Það er skylda okkar, kæru bræður, breyta eftir þessum mönnum. Svo stendur skrifað: "Leggið lag ykkar við heilaga, því þeir sem leggja lag sitt við þá verða sjálfir heilagir." Og á öðrum stað segir: "Með hinum saklausu verður þú saklaus, með hinum útvöldu verður þú útvalinn, með hinum svikulu verður þú svikull." Við skulum þannig gera hina saklausu og heiðarlegu félögum okkar því þeir eru Guðs útvöldu. Hvers vegna eru deilur, heift, flokkadrættir, klofningur og ófriður meðal ykkar? Höfum við ekki allir sama Guð og sama Krist? Er það ekki sami Andi náðarinnar sem úthellist yfir okkur? Og er hún ekki ein köllun okkar í Kristi? Hvers vegna erum við þá rífa og slíta í sundur meðlimi Krists og ýta undir ófrið í okkar eigin líkama? Hvers vegna höfum við glatað allri skynsemi og gleymt því við erum meðlimir hvers annars? Minnist orða Drottins Jesú, því hann sagði: "Vei þeim manni; betra væri honum hafa aldrei fæðst en syndga gegn einum af mínum útvöldu. Betra væri honum hafa mylnustein um hálsinn og vera varpað í hafið en tæla einn af mínum útvöldu til falls." Óeining ykkar hefur leitt marga til falls. Hún hefur leitt marga á barm örvæntingar og margir hafa fyllst efa og öllum hefur hún fært sorg. Engu síður er ekkert lát á ófriði ykkar.




Previous - Next

Table of Contents | Words: Alphabetical - Frequency - Inverse - Length - Statistics | Help | IntraText Library

Best viewed with any browser at 800x600 or 768x1024 on Tablet PC
IntraText® (V89) - Some rights reserved by EuloTech SRL - 1996-2007. Content in this page is licensed under a Creative Commons License