50.
Íhugið því, mínir elskuðu, hversu
stór og undursamlegur kærleikurinn er. Það skortir
orð til að lýsa fullkomleika hans. Hver getur varðveitt hann
nema sá sem Guð telur þess verður? Við skulum
því biðja af einlægni um miskunn hans til að við
megum vera óaðfinnanlegir í kærleika og forðast
mannlega uppgerð. Allar hafa kynslóðirnar frá Adam til
okkar daga lokið jarðvist sinni og þeim sem hafa verið
fullkomnar í kærleikanum eftir mælingu náðar
Guðs er búinn staður meðal hinna heilögu Guðs og
þær munu opinberast öllum þegar konungsríki
Krists birtist okkur. Því svo stendur skrifað: "Gakk
þú inn í herbergi þitt og fel þig örskamma
hríð uns reiðin og heift mín er liðin hjá; og
þá mun ég minnast dags fagnaðarins og reisa ykkur
úr gröfum ykkar." Sælir erum við, mínir
elskuðu, ef við höldum í heiðri boðorð Guðs
í sátt og samlyndi kærleikans, því
þannig stuðlar kærleikurinn að því að
syndir okkar eru fyrirgefnar. Svo stendur skrifað: "Sælir eru
þeir er afbrotin eru fyrirgefin, syndir þeirra huldar. Sæll
er sá maður er Drottinn tilreiknar eigi misgjörð og hefur
eigi svik á vörum." Þessarar blessunar nutu þeir
sem voru útvaldir af Guði fyrir Jesúm Krist, Drottin okkar.
Honum sé dýrðin um aldir alda, amen.
|