Table of Contents | Words: Alphabetical - Frequency - Inverse - Length - Statistics | Help | IntraText Library
San Clemente I
Fyrra bréf

IntraText CT - Text

  • 53
Previous - Next

Click here to hide the links to concordance

53. Mínir elskuðu, þið þekkið heilaga Ritningu, þið þekkið hana mjög vel og hafið kannað hin guðlegu boð. Þess vegna skrifum við ykkur um þessa hluti til minna ykkur á þegar Móse sté upp á fjallið og hafði verið þar fjörutíu daga og fjörutíu nætur við föstu og sjálfsögun, sagði Guð við hann: "Móse, Móse far þú skjótt ofan því fólk þitt, sem þú leiddir út af Egyptalandi, hefur misgjört. Skjótt hefur það vikið af þeim vegi sem ég bauð því og hefur það gjört sér steypt líkneski." Og Drottinn sagði ennfremur: "Oftar en einu sinni hef ég mælt svo til þín. Ég hef séð þessi lýður er harðsvírað fólk. Lát mig tortíma því og afmá nöfn þess undir himninum og síðan vil ég gjöra þig mikilli þjóð, meiri og voldugri en það er." En Móse svaraði: "Æ, Drottinn, fyrirgef þeim synd þeirra; ef ekki, þá bið ég þú máir mig af bók hinna lifandi." Þetta er takmarkalaus kærleikur! Óviðjafnanlegur fullkomleiki! Þjónninn talar djarflega til Drottins síns og leitar fyrirgefningar fyrir fjöldann. Ef ekki þá vill hann farast með þeim.




Previous - Next

Table of Contents | Words: Alphabetical - Frequency - Inverse - Length - Statistics | Help | IntraText Library

Best viewed with any browser at 800x600 or 768x1024 on Tablet PC
IntraText® (V89) - Some rights reserved by EuloTech SRL - 1996-2007. Content in this page is licensed under a Creative Commons License