Table of Contents | Words: Alphabetical - Frequency - Inverse - Length - Statistics | Help | IntraText Library
San Clemente I
Fyrra bréf

IntraText CT - Text

  • 56
Previous - Next

Click here to hide the links to concordance

56. Þannig skulum við einnig biðja fyrir þeim sem hafa gerst sekir um yfirsjónir, þeim verði gefið auðsýna mildi og auðmýkt sem geri þeim kleift gefa sig á hönd, ekki okkur, heldur vilja Guðs. Og þá mun þeirra verða minnst af samúð í bænum okkar frammi fyrir Guði og hans heilögu og þeir munu njóta fullu ávaxta þess. Ó mínir elskuðu, tökum umvöndun því það er eitthvað sem engum ætti gremjast. Það er öllu leyti til góðs og sérstaklega nytsamlegt við áminnum hver annan því það leiðir okkur til einingar við vilja Guðs. Svo segir hið heilaga orð: "Drottinn hefur hirt mig harðlega en eigi ofurselt mig dauðanum. Drottinn agar þá sem hann elskar og lætur þann son kenna til, sem hann hefur mætur á." Þá segir ennfremur: "Réttlátur maður mun hirta mig í miskunn sinni og aga mig; en megi höfuð mitt aldrei verða smurt olíu syndarans." Og enn aftur segir: "Sæll er maður er Guð hirtir og lítilsvirð eigi umvöndun hins Almáttuga. Því hann særir en bindur og um, hann slær og hendur hans græða. Úr sex nauðum frelsar hann þig og í hinni sjöundu snertir þig ekkert illt. Í hallærinu frelsar hann þig frá dauða og í orrustunni undan valdi sverðsins. Fyrir svipu tungunnar ert þú falinn og þarft ekkert óttast er illskan kemur. óguðlegum og lögleysingjum getur þú hlegið og villidýrin þarft þú ekki óttast; því villidýrin eru í sátt við þig. Þá munt þú vita bústaður þinn býr við frið og tjald þitt er heilt. Þú munt einnig komast raun um niðjar þínir eru margir og afsprengi þitt sem gras á jörðu. Og þú munt ganga inn í gröfina eins og kornbundinið er látið í hlöðuna á sínum tíma eða eins og hveitibingur í kornláfanum er safnað á réttum tíma." Þannig getið þið séð, kæru vinir, hversu mikla vernd þeir sem Drottinn hirtir. Hann er góður Faðir sem hirtir okkur til við finnum miskunn fyrir heilaga ögun hans.




Previous - Next

Table of Contents | Words: Alphabetical - Frequency - Inverse - Length - Statistics | Help | IntraText Library

Best viewed with any browser at 800x600 or 768x1024 on Tablet PC
IntraText® (V89) - Some rights reserved by EuloTech SRL - 1996-2007. Content in this page is licensed under a Creative Commons License