8. Allir
þjónar náðar Guðs hafa boðað iðrun
með rödd Heilags Anda. Meira að segja Drottinn sjálfur
hefur talað um nauðsyn hennar og borið jafnvel eið að
því: "Eins og ég sannarlega lifi, segir Drottinn,
þá er það ekki dauði syndarans sem ég
þrái, ég þrái iðrun hans." Og
síðan segir hann svo undursamlega: "Iðrastu, ó
þú Ísraels hús, og snú af vegi illsku
þinnar. Segðu við börn lýðs míns.
Séu syndir ykkar himinháar og séu þær
rauðari en skarlat og svartari en hærusekkur en þið
snúið ykkur til mín af öllu hjarta og segið
"Faðir" þá mun ég hlusta á ykkur eins
og ég hlusta á hina heilögu." Og á
öðrum stað segir hann: "Þvoið ykkur, hreinsið
ykkur. Takið illskubreytni ykkar í burt frá augum mínum.
Látið af að gjöra illt, lærið gott að
gjöra! Leitið þess sem rétt er. Hjálpið
þeim sem fyrir ofríki verður. Rekið réttar hins
munaðarlausa. Verjið málefni ekkjunnar. Komið, eigumst
lög við! - segir Drottinn. Þó að syndir ykkar
séu sem skarlat, skulu þær verða hvítar sem
mjöll. Þó að þær séu rauðar sem
purpuri, skulu þær verða sem ull. Ef þið eruð
auðsveipir og hlýðnir, þá skuluð þið
njóta landsins gæða, en ef þið færist undan
því og þverskallist, þá skuluð
þið verða sverði bitnir. Munnur Drottins hefur talað
það." Þannig hefur Drottinn talað og staðfest sinn
almáttuga vilja að iðrun standi öllum hans elskuðu til
boða.
|