Table of Contents | Words: Alphabetical - Frequency - Inverse - Length - Statistics | Help | IntraText Library
San Clemente I
Fyrra bréf

IntraText CT - Text

  • 13
Previous - Next

Click here to hide the links to concordance

13. Mínir elskulegu bræður, sýnum auðmýkt. Látum af hroka og drambsemi og heimskulegum deilum og förum þess í stað eftir því sem skrifað stendur (því Heilagur Andi segir: "Hinn vitri hrósi sér ekki af visku sinni og hinn sterki hrósi sér ekki af styrkleika sínum og hinn auðugi hrósi sér ekki af auði sínum. Hver er vill hrósa sér, hrósi sér af því hann þekki Drottin því þannig mun hann leita hans og gera rétt og auðsýna réttlæti"). Minnumst þess sérstaklega hvað Drottinn Jesús Kristur sagði í einni ræðu sinni um mildi og umburðarlyndi: "Verið miskunnsamir, sagði hann, til þið megið miskunn hljóta; fyrirgefið til ykkur verði fyrirgefið. Það sem þið gjörið, verður ykkur gjört; það sem þið gefið verður ykkur gefið; svo sem þið dæmið munuð þið dæmdir; góðvild verður ykkur sýnd eins og þið sýnið hana. Sem þið mælið mun ykkur mælt verða." Megi slíkar lífsreglur og boð styrkja ásetning okkar vera hlýðin heilögum orðum hans með allri auðmýkt andans, því þannig segir hið helga orð: "Á hverjum á ég hafa velþóknun ef ekki honum sem er hógvær og friðelskur og skelfur fyrir orði mínu?"




Previous - Next

Table of Contents | Words: Alphabetical - Frequency - Inverse - Length - Statistics | Help | IntraText Library

Best viewed with any browser at 800x600 or 768x1024 on Tablet PC
IntraText® (V89) - Some rights reserved by EuloTech SRL - 1996-2007. Content in this page is licensed under a Creative Commons License