14. Vissulega
er það réttara og lotningarfyllra af okkur, bræður
mínir, að hlýða Guði en að fylgja þeim sem
eru svo forhertir í óhlýðni sinni að þeir
hafa hafið sig til forystu í þessari andstyggilegu togstreitu.
Þar höfum við sannarlega enga smávægilega
hættu á ferð því okkar bíður
dauðans háski ef við af vanhugsuðu ráði
förum að dæmi þeirra sem efnt hafa til átaka og
hafa í frammi uppreisnaráróður í
því skyni að leiða okkur af hinni réttu braut.
Við ættum þess í stað að ástunda
það að sýna hver öðrum vinsemd og gera
það með sama unaðslega anda og skapari okkar. Svo stendur
skrifað: "Hinir góðhjörtuðu munu byggja landið
og hinir saklausu munu þar dveljast, en hinir syndugu munu
þaðan upprættir verða." Og aftur segir:
"Ég sá hinn óguðlega rísa hátt og
rjúka upp eins og sedrustrén á Líbanon. En
sjá, þegar ég fór þar um aftur var hann farinn
og þegar ég leitaði að dvalarstað hans, fann ég
hann hvergi. Verið heiðvirðir og beinið sjónum ykkar
að því sem rétt er, því sá sem er
maður friðar mun geta sér niðja sem munu fylgja honum."
|