20. Himnarnir
hreyfast samkvæmt stjórn hans og lúta honum af spekt. Dagur
og nótt renna það skeið sem hann hefur sett þeim og
hvorugt truflar hitt. Í samræmi við skipan hans halda
sólin, máninn og stjörnukórinn stefnu sinni og enginn
víkur af tilsettri braut. Jörðin ber ávöxt
samkvæmt vilja hans þegar rétt árstíð
kemur og uppsker næga fæðu fyrir menn og dýr og allt
það sem á henni nærist og hún reynir ekki að
haga sér með öðrum hætti en hann hefur mælt
fyrir um. Samskonar lögmál gildir um hin botnlausu undirdjúp
og ókönnuðu lönd undirheimanna. Hið óendanlega
djúphafsflæmi sem hann fastmótaði til að geyma
vötnin, rýfur ekki þá marklínu sem dregin hefur
verið um það. Það gerir eins og hann bauð
því þegar hann sagði: "Hér eru
þín endimörk og öldur þínar skulu brotna
hið innra með þér." Úthafið sem er illfært
manninum og löndin sem liggja handan þess, stjórnast af
sömu tilhögun Drottins. Vor, sumar, haust og vetur taka hvert
við af öðru án átaka. Vindarnir sem eiga sér
heimkynni hver á sínum stað rækja skyldur sínar
á réttum tíma og án röskunar. Og rennandi
uppspretturnar sem skapaðar voru okkur til ánægju og
heilbrigðis, bjóða fram barmfylli sína til að
viðhalda lífi mannanna. Jafnvel það smæsta sem
lifir, blandast saman af mestu friðsemd. Öllu þessu hefur hinn
mikli hönnuður og Drottinn alheimsins gefið frið og samlyndi
og gert það öllum til góðs en þó umfram
allt okkur sem höfum leitað athvarfs í miskunn hans fyrir
Drottin okkar Jesúm Krist. Hans
sé dýrðin og tignin um aldir alda, amen.
|