21.
Gætið því að ykkur, vinir mínir, af
ótta við að ef okkur mistekst að sýna breytni sem er
honum samboðin og að gera það sem er gott og honum
hugljúft, þá muni allur velgjörningur hans
snúast okkur til bölvunar. En einhvers staðar stendur:
"Andi Drottins er lampi sem rannsakar hvern afkima hjartans." Við
skulum því hafa það hugfast hversu nálægur
hann er okkur og minnast þess að ekki ein einasta hugsun okkar
eða ráðagerð er honum hulin. Það eina rétta
sem við gerum er því ekki að flýja vilja hans
(í stað þess að standa gegn Guði ættum við
að standa gegn heimsku og fávisku þessara drambsömu manna
og hávaðasömum mont-ræðum þeirra), heldur
að beygja okkur í virðingu fyrir Drottni Jesú Kristi en
það var blóð hans sem var úthellt fyrir okkur.
Við skulum því sýna stjórnarherrum okkar
háttvísi, heiðra öldunga okkar og venja unga fólkið
á að lifa í guðsótta. Beinum kvenfólki
okkar á braut góðra siða og kennum því
að sýna fordæmi í ástúð og
hreinleika, einlægni og góðlegu innræti. Látum
það sýna að með því að virða
þögnina hafi það taum á tungu sinni. Hjálpum
því að sýna kærleika sinn með
óhlutdrægum hætti, að það sýni hann
jafnt öllum þeim sem óttast Drottinn í heilagleika.
Sjáið til þess að börnin okkar fái kristilega
uppfræðslu. Látið þau komast að raun um hversu
miklu auðmjúk sál fær áorkað hjá
Guði, hversu kröftuglega hrein og saklaus ást nær eyrum
Guðs, hversu mikilfenglegt og gott það er að óttast
hann og hvernig það veitir öllum þeim
hjálpræði sem gera það með heilögu og
hreinu hjarta. Því hann er rannsakandi hugrenninga okkar og
langana. Hann er lífsandinn sem dvelur í okkur og ef honum svo
sýnist tekur hann hann burtu frá okkur.
|