Table of Contents | Words: Alphabetical - Frequency - Inverse - Length - Statistics | Help | IntraText Library
San Clemente I
Fyrra bréf

IntraText CT - Text

  • 23
Previous - Next

Click here to hide the links to concordance

23. Hinn algóði og miskunnsami Faðir lítur alla þá mildum augum sem óttast hann. Þeir sem nálægjast hann með einlægu hjarta veitist náðarsamleg hylli. Forðumst því tvílyndi og ölum ekki á innri efa um mikilfenglegar og dýrlegar gjafir hans. Megi þessi skrifuðu orð vera okkur framandi: "Hversu aumir eru ekki hinir óráðnu og þeir sem eru efagjarnir í hjarta sér, þeir sem segja: Jafnvel á dögum feðra okkar heyrðum við um þessa hluti; en sjá, erum við aldraðir og ekkert af þessu hefur hent okkur. Þið fávísu menn! Líkið ykkur við tré. Lítið á vínviðinn. Fyrst fellir hann laufin, þá brumar hann og lauf kemur og seinna blóm og eftir það græn og súr vínber og lokum fullþroska berjaklasi." Takið eftir hversu stuttan tíma það tekur fyrir ávöxtinn fullþroskast. Sannarlega mun vilji hans verða uppfylltur með jafn skjótum og snöggum hætti. Eins og raunar Ritningin staðfestir þegar hún segir: "Sannarlega kemur hann skyndilega, hann mun ekkert dvelja." Og aftur: "Drottinn hinn Heilagi sem þú væntir mun koma fyrirvaralaust til musteris síns."




Previous - Next

Table of Contents | Words: Alphabetical - Frequency - Inverse - Length - Statistics | Help | IntraText Library

Best viewed with any browser at 800x600 or 768x1024 on Tablet PC
IntraText® (V89) - Some rights reserved by EuloTech SRL - 1996-2007. Content in this page is licensed under a Creative Commons License