Table of Contents | Words: Alphabetical - Frequency - Inverse - Length - Statistics | Help | IntraText Library
San Clemente I
Fyrra bréf

IntraText CT - Text

  • 25
Previous - Next

Click here to hide the links to concordance

25. Lítið á hið einkennilega fyrirbæri sem gerist í austurvegi (nánar tiltekið nærri Arabíu). Þar er fugl sem kallaður er Fönix. Hann er einn sinnar tegundar og lifir í fimm hundruð ár. Þegar endalokin nálgast og dauðinn er yfirvofandi gerir hann sér hreiður úr reykelsi, myrru og öðrum ilmefnum og í fyllingu tímans sest hann í hreiðrið og deyr. Rotnandi kjötið elur af sér lirfu sem nærist á safa hræsins þar til hún verður fleyg. Þegar hún hefur náð nægum styrk flýgur hún með hreiðrið, sem geymir bein gamla fuglsins, alla leið frá Arabíu til egypsku borgarinnar Heliopolis. Þar í dagsbirtunni og frammi fyrir öllum flýgur hún upp altari sólarinnar, setur beinin þar á og snýr aftur til heimkynna sinna. Og þegar prestarnir líta í tímaskrár sínar, sjá þeir hún kom í lok fimm hundraðasta ársins.




Previous - Next

Table of Contents | Words: Alphabetical - Frequency - Inverse - Length - Statistics | Help | IntraText Library

Best viewed with any browser at 800x600 or 768x1024 on Tablet PC
IntraText® (V89) - Some rights reserved by EuloTech SRL - 1996-2007. Content in this page is licensed under a Creative Commons License