Table of Contents | Words: Alphabetical - Frequency - Inverse - Length - Statistics | Help | IntraText Library
San Clemente I
Fyrra bréf

IntraText CT - Text

  • 32
Previous - Next

Click here to hide the links to concordance

32. Hver sem af heiðarleika gaumgæfir hvert þessara tilfella mun skynja mikilfengleika þeirra gjafa sem koma frá Guði. Því allir prestarnir og levítarnir sem þjóna við altari Guðs eru komnir af Jakobi. Drottinn Jesús er einnig af honum, samkvæmt holdinu. Af honum komu konungar, höfðingjar og leiðtogar af ættkvísl Júda. Og aðrar ættkvíslar hans njóta mikils heiðurs enda hafði Guð gefið fyrirheit þegar hann sagði: "Niðjar þínir munu verða eins og stjörnurnar á himninum." Öllum var þeim gefinn mikill heiður og frægð; en þó ekki vegna eigin verðleika eða afreka, ekki fyrir sín góðu verk heldur samkvæmt vilja Guðs. Á sama hátt erum við, sem samkvæmt vilja hans höfum verið kallaðir í Kristi Jesú, ekki réttlættir af eigin gjörðum eða vegna visku okkar, skilnings eða trúrækni eða af slíkum dáðum sem við höfum gert í heilagleika hjartans, heldur af trú en fyrir hana hefur almáttugur Guð réttlætt alla menn frá upphafi tíma. Dýrð honum um aldir alda, amen.




Previous - Next

Table of Contents | Words: Alphabetical - Frequency - Inverse - Length - Statistics | Help | IntraText Library

Best viewed with any browser at 800x600 or 768x1024 on Tablet PC
IntraText® (V89) - Some rights reserved by EuloTech SRL - 1996-2007. Content in this page is licensed under a Creative Commons License