Table of Contents | Words: Alphabetical - Frequency - Inverse - Length - Statistics | Help | IntraText Library
San Clemente I
Fyrra bréf

IntraText CT - Text

  • 33
Previous - Next

Click here to hide the links to concordance

33. Hvað hefur þetta í för með sér, kæru bræður? Eigum við taka okkur hvíld frá því ástunda góð verk og hætta iðka kærleika? Megi Guð forða okkur frá öllu slíku. Við skulum þvert á móti af fullri einlægni, jafnvel af ástríðu, ásetja okkar ástunda þau verk sem góð eru. Jafnvel höfundur og Drottinn alheimsins hefur sjálfur yndi af því vinna. Í almætti sínu hefur hann stofnsett himnanna og af sinni órannsakanlegri visku hefur hann raðað þeim. Hann aðskildi jörðina frá vötnunum sem umluktu hana og setti hana fast á traustan grunn vilja síns. Og með orðum sínum kallaði hann til lífs dýr vallarins sem á henni reika. Hann myndaði sjóinn og dýrin sem í honum eru og innan þeirra marka hélt hann þeim með mætti sínum. En hæst ber hið mikla verk sem af visku hans ber af öllum öðrum - með sínum heilögu og flekklausu höndum mótaði hann manninn eftir sinni eigin mynd, því Guð sagði: "Við viljum gjöra mann eftir okkar mynd, líkan okkur; og Guð skapaði manninn, hann skapaði þau karl og konu." Og þegar hann hafði lokið öllu sínu verki leit hann á þau með velþóknun, blessaði þau og sagði: "Aukið kyn ykkar og margfaldist." Við sjáum því góðverk hafa ekki einungis fegrað líf allra réttlátra manna heldur fagnar jafnvel Drottinn eftir hafa prýtt sig með verkum sínum. Þegar við höfum slíkt fordæmi fyrir augum eigum við umyrðalaust ganga vilja hans og beina allri orku okkar því inna af hendi réttlætisverk.




Previous - Next

Table of Contents | Words: Alphabetical - Frequency - Inverse - Length - Statistics | Help | IntraText Library

Best viewed with any browser at 800x600 or 768x1024 on Tablet PC
IntraText® (V89) - Some rights reserved by EuloTech SRL - 1996-2007. Content in this page is licensed under a Creative Commons License