Table of Contents | Words: Alphabetical - Frequency - Inverse - Length - Statistics | Help | IntraText Library
San Clemente I
Fyrra bréf

IntraText CT - Text

  • 34
Previous - Next

Click here to hide the links to concordance

34. Góður vinnumaður tekur á móti afrakstri vinnu sinnar án efasemda, en sem er iðjulaus og latur getur ekki horfst í augu við húsbónda sinn. Þetta er ástæða þess við verðum helga okkur af hjarta og sál þeirri iðju gera gott, því allt kemur frá hendi Guðs og hann hefur þegar varað okkur við: "Sjá, Drottinn nálgast með umbun sína fyrir augum til launa hverjum manni eins og hann á skilið." Þess vegna biður hann okkur treysta sér af öllu hjarta og vera ekki iðjulausir eða skeytingarlausir þegar góðverk eru annars vegar. Við skulum því láta alla upphefð okkar og tiltrú hvíla í honum og ganga vilja hans. Hugsið um hinn gríðarmikla fjölda engla sem bíður þess þjóna honum samkvæmt vilja hans: "Tíuþúsundir tíuþúsunda stóðu frammi fyrir honum," segir Ritningin, "og þúsundir þúsunda þjónuðu honum og hrópuðu: Heilagur, heilagur, heilagur er Drottinn hersveitanna; öll sköpunin er full dýrðar hans." Með sama hætti eigum við, samankomnir í sátt og samlyndi, hrópa til hans einum rómi ef við ætlum öðlast hlutdeild í hinum miklu og dýrlegu fyrirheitum hans - því svo segir: "Auga hefur ekki séð og eyra hefur ekki heyrt og ekki hefur komið upp í hjarta nokkurs manns allt það sem Guð hefur fyrirbúið þeim er bíða hans."




Previous - Next

Table of Contents | Words: Alphabetical - Frequency - Inverse - Length - Statistics | Help | IntraText Library

Best viewed with any browser at 800x600 or 768x1024 on Tablet PC
IntraText® (V89) - Some rights reserved by EuloTech SRL - 1996-2007. Content in this page is licensed under a Creative Commons License