| Table of Contents | Words: Alphabetical - Frequency - Inverse - Length - Statistics | Help | IntraText Library |
| San Clemente I Fyrra bréf IntraText CT - Text |
|
|
|
40. Við sem höfum grannskoðað dýptir hinna helgu fræða skiljum að fullu þessa hluti. Við höfum því þeirri skyldu að gegna að inna af hendi af mestu nákvæmni það sem Drottinn hefur mælt fyrir um að skuli gert á tilteknum tímum. Hann hefur fyrirskipað að fórnfæringar og þjónustur skyldu ekki vera háðar tilviljunum eða framkvæmdar með óreglubundnum hætti heldur að stund og árstíð skyldu vera fastákveðnar. Hann hefur ennfremur sjálfur ákveðið samkvæmt sínum æðsta vilja, hvar þær skuli fara fram og hver eigi að inna þær af hendi til að tryggja að allt fari guðrækilega fram samkvæmt óskum og vilja hans. Af þessu leiðir að þeir sem bera fram fórnir sínar á slíkum tilteknum tímum eru viðurkenndir og njóta blessunar því meðan þeir halda í heiðri tilskipun Drottins, fara þeir rétt að. Sérstakar athafnir eru ætlaðar æðsta prestinum, til að taka dæmi. Prestarnir hafa sínum stöðum að gegna og sérstakar helgiþjónustur inna levítar af hendi, og leikmaðurinn8 er bundinn af reglum sem varðar leika menn.
|
8) Hér er komin elsta heimildin um orðið leikmaður er sýnir að skýr skil hafi verið á milli klerkdóms og almennings í frumkristni (sjá H. Bettenson, The Early Christian Fathers (Oxford 1956) b. 32). |
Table of Contents | Words: Alphabetical - Frequency - Inverse - Length - Statistics | Help | IntraText Library |
Best viewed with any browser at 800x600 or 768x1024 on Tablet PC IntraText® (V89) - Some rights reserved by EuloTech SRL - 1996-2007. Content in this page is licensed under a Creative Commons License |