Table of Contents | Words: Alphabetical - Frequency - Inverse - Length - Statistics | Help | IntraText Library
San Clemente I
Fyrra bréf

IntraText CT - Text

  • 59
Previous - Next

Click here to show the links to concordance

59. En ef það eru einhverjir sem neita að fara eftir því sem hann hefur sagt fyrir munn okkar, 10 þá skulu þeir ekki velkjast í vafa um að brot þeirra er mikið og að þeir hafa sett sig í mikla hættu. Hvað okkur áhrærir þá munum við gæta þess að vera saklausir af slíkri synd. Við munum sárbæna skapara alheimsins með hjartnæmum bænum okkar að allir hans útvöldu um gjörvallan heim megi ávallt og undantekningarlaust varðveitast heilir fyrir hans elskaða Son Jesúm Krist en fyrir hann hefur hann leitt okkur úr myrkrinu í ljósið og beint okkur frá vanvisku til fullrar þekkingar á dýrð nafns hans.

(Gef oss Drottinn) að vona á nafn þitt sem gaf allri sköpuninni tilveru sína. Opna augu hjartna vorra til að vér megum þekkja þig sem einn ert æðstur meðal hinna æðstu og heilagastur meðal hinna heilögustu. Þú lægir hroka hinna dramblátu og tvístrar ráðabruggi þjóðanna. Þú upphefur lítilmagnann og niðurkefur hina hrokafullu. Þú gjörir fátækan og ríkan, deyðir og lífgar. Þú einn ert velgjörðarmaður sérhvers anda og Guð alls holds. Þú lítur niður í djúpin og rannsakar verk mannanna. Þú ert hjálpari þeirra sem eru í neyð, bjargvættur þeirra sem örvænta, skapari og vörður sérhverrar sálar. Þú margfaldar þjóðir jarðarinnar og af öllum mönnum hefur þú valið þá sem elska þig fyrir Jesúm Krist, þinn elskaða Son, en fyrir hann hefur þú leiðbeint oss, heiðrað oss og helgað. Vér biðjum þig, ó Drottinn, að vera hjálpari vor og verndari. Frelsa hina þjáðu, líknaðu hinum lítillátu, reistu við hina föllnu, gjör þig sýnilegan þeim sem þurfandi eru, lækna sjúka og snúðu heim þínum villuráfandi lýð. Mettaðu hungraða, leystu bandingja, styrktu hina óstöðugu og huggaðu hina huglausu. Lát allar þjóðir vita að þú einn ert Guð, að Jesús Kristur er Sonur þinn og að vér erum lýður þinn og gæsluhjörð.




10) Rétt er að hafa í huga að hl. Klemens er ekki hér að beina orðum sínum að þeim söfnuði sem næstur honum stendur. Hann virðist ekki í vafa um að biskupsdæmi Rómar, sem hann stýrir, njóti sérstakra forréttinda.




Previous - Next

Table of Contents | Words: Alphabetical - Frequency - Inverse - Length - Statistics | Help | IntraText Library

Best viewed with any browser at 800x600 or 768x1024 on Tablet PC
IntraText® (V89) - Some rights reserved by EuloTech SRL - 1996-2007. Content in this page is licensed under a Creative Commons License