| Table of Contents | Words: Alphabetical - Frequency - Inverse - Length - Statistics | Help | IntraText Library |
| San Clemente I Fyrra bréf IntraText CT - Text |
|
|
|
1. Vegna þeirrar skyndilegu ógæfu og hörmungar sem yfir okkur hefur gengið3 höfum við, kæru vinir, ekki sinnt sem skyldi því ófriðarástandi sem ríkt hefur í samfélagi ykkar. Við höfum sérstaklega í huga hinn andstyggilega og óguðlega klofning meðal ykkar sem er algjörlega ósamboðinn Guðs útvalda lýð. Og þeir eru einungis fáeinir bráðlyndir og fljótfærir einstaklingar sem hafa gert málið að slíku ófriðarbáli að ykkar heiðraða og nafntogaða nafn, sem svo ríkulega verðskuldar aðdáun allra, hefur beðið hnekki. Þeir voru tímar að það fór ekki framhjá neinum sem heimsótti ykkur hve trú ykkar var framúrskarandi og staðföst. Eða komst nokkur hjá því að dásama umburðarlynda og óeigingjarna guðrækni ykkar? Eða segja frá stórkostlegri gestrisni ykkar? Eða hrósa ykkur fyrir góða og sanna þekkingu? Það var venja ykkar að gera alla hluti án þess að huga að stöðu ykkar í lífinu. Þið lifðuð samkvæmt lögmáli Guðs, þið voruð þeim undirgefnir sem yfir ykkur voru settir4 og virtuð öldungana. Ungum karlmönnum var leiðbeint við að iðka sjálfsstjórn og sýna stillingu og konum var boðið að rækja skyldur sínar af óaðfinnanlegri guðrækni og hreinu hjarta og sýna eiginmönnum sínum ástúð; þeim var einnig kennt að gera hlýðni að lífsreglu og halda heimili á tilhlýðilegan og forsjálan hátt.
|
3) Páfi er að vísa til ofsókna Domitíanusar keisara (81 - 96). 4) Hér er átt við yfirvald kirkjunnar. |
Table of Contents | Words: Alphabetical - Frequency - Inverse - Length - Statistics | Help | IntraText Library |
Best viewed with any browser at 800x600 or 768x1024 on Tablet PC IntraText® (V89) - Some rights reserved by EuloTech SRL - 1996-2007. Content in this page is licensed under a Creative Commons License |