| Table of Contents | Words: Alphabetical - Frequency - Inverse - Length - Statistics | Help | IntraText Library |
| San Clemente I Fyrra bréf IntraText CT - Text |
|
|
|
6. Auk þessara manna sem stunduðu heilagt líferni hafa margir fleiri hinna útvöldu orðið að þola þrengingar og kvalir vegna afbrýðisemi annarra en með því hafa þeir gefið okkur gott fordæmi til að fara eftir. Afbrýðisemi olli því að konur voru ofsóttar og látnar ganga í gegnum hræðilegar og djöfullegar pyndingar sem væru þær Danaids og Dircae. 6 En þótt þær væru ekki sterkbyggðar náðu þær settu marki í trúarbaráttu sinni og öðluðust göfug laun sín. Afbrýðisemi hefur valdið slitum hjá hjónum og þannig afbakað það sem faðir okkar Adam sagði: "Þetta er loks bein af mínum beinum og hold af mínu holdi." Öfund og afbrýði hafa valdið því að miklar borgir hafa hrunið og að máttugar þjóðir hafa flosnað upp.
|
6) Það er talið að kristnar konur hafi verið látnar leika goðafræðilegar persónur í hringleikahúsinu. Þykir líklegt að Klemens sé að vísa til þessa. |
Table of Contents | Words: Alphabetical - Frequency - Inverse - Length - Statistics | Help | IntraText Library |
Best viewed with any browser at 800x600 or 768x1024 on Tablet PC IntraText® (V89) - Some rights reserved by EuloTech SRL - 1996-2007. Content in this page is licensed under a Creative Commons License |