Table of Contents | Words: Alphabetical - Frequency - Inverse - Length - Statistics | Help | IntraText Library
Sant’Ignazio di Antiochia
Bréf til Efesusmanna

IntraText CT - Text

  • 19
Previous - Next

Click here to hide the links to concordance

19. Meydómur Maríu var hulinn höfðingja þessa heims; það var einnig barnsfæðing hennar, og það var einnig dauði Drottins. Þessir þrír skerandi leyndardómar fundu leið sína í djúpri þögn Guðs. Hvernig voru þeir þá kunngjörðir heiminum? Á himnum skein stjarna, hún skein skærar en allar hinar; engin orð gátu skýrt dýrðarljóma hennar og ókunn einkenni hennar gerðu menn ráðvillta. Hinar stjörnurnar og sólin og máninn röðuðust í kringum hana í þyrpingu en skin hennar bar af þeim öllum. Þetta var öllum mikil ráðgáta; hvaðan kom þessi aðkomustjarna, sem var svo ólík öllum öðrum? Alls staðar sundraði ljómi hennar göldrum; álögum fjölkynngi var eytt og hjátrú fékk náðarhögg sitt. Endi var bundinn á hið ævaforna ríki, því var Guð birtast í mannlegri mynd til koma á nýrri skipan, jafnvel lífi án enda. hófst það sem fullkomnað hafði verið í guðlegu ráði; og öll sköpunin komst í uppnám vegna þessarar fyrirætlunar um algera eyðingu dauðans.




Previous - Next

Table of Contents | Words: Alphabetical - Frequency - Inverse - Length - Statistics | Help | IntraText Library

Best viewed with any browser at 800x600 or 768x1024 on Tablet PC
IntraText® (V89) - Some rights reserved by EuloTech SRL - 1996-2007. Content in this page is licensed under a Creative Commons License