| Table of Contents | Words: Alphabetical - Frequency - Inverse - Length - Statistics | Help | IntraText Library |
| Sant’Ignazio di Antiochia Bréf til Efesusmanna IntraText CT - Text |
|
|
|
1. Heimsókn ykkar til mín var himnasending. Sá hlýhugur sem einkennir nafn ykkar er ykkur eðlisbundinn og kemur einnig fyrir dyggð trúar ykkar og kærleika til frelsara okkar Jesúm Krist. Með því að hafa Guð til eftirbreytni hafið þið uppfyllt fullkomlega skyldur bróðurkærleikans af þeim brennandi áhuga sem hið dýrmæta blóð hans hefur tendrað. Því svo skjótt sem þið heyrðuð af för minni frá Sýrlandi sem fangi í þágu nafnsins og vonarinnar sem við deilum allir saman (og í trausti þess að fyrir bænir ykkar verði mér gefið að berjast við villidýr í Róm - blessun sem mun gera mér fært að verða að sönnum lærisveini), létuð þið ekkert aftra ykkur frá því að hitta mig. Þannig fékk ég í Guðs nafni tækifæri til að taka á móti öllu samfélagi ykkar í persónu biskups ykkar Onesímusar. Ekkert fær lýst hjartfólginni góðvild hans; ég bið þess einlæglega að þið styðjið hann í sönnum anda Jesú Krists og að allir megið þið feta í fótspor hans. Þakkir séu honum sem gaf ykkur þau forréttindi að eiga slíkan biskup sem þið raunar eigið fyllilega skilið.
|
Table of Contents | Words: Alphabetical - Frequency - Inverse - Length - Statistics | Help | IntraText Library |
Best viewed with any browser at 800x600 or 768x1024 on Tablet PC IntraText® (V89) - Some rights reserved by EuloTech SRL - 1996-2007. Content in this page is licensed under a Creative Commons License |