Table of Contents | Words: Alphabetical - Frequency - Inverse - Length - Statistics | Help | IntraText Library
Sant’Ignazio di Antiochia
Bréf til Efesusmanna

IntraText CT - Text

  • 9
Previous - Next

Click here to show the links to concordance

9. Hvað sem því líður frétti ég af vissum mönnum sem heimsóttu ykkur langt að og fluttu ykkur skaðlegan boðskap. Þið hafið hins vegar neitað að láta hann breiðast út meðal ykkar og hafið daufheyrst við því sem þeir hafa reynt að innblása ykkur. Þið voruð daufdumbir sem steinar; já steinar í musteri Föðurins, steinar gerðir fyrir Guð að byggja með og sem dregnir eru upp af lyftiarmi Jesú Krists (krossinum) og hefur Heilagan Anda fyrir vírstreng; trú ykkar er togvindan sem dregur ykkur til Guðs, upp kærleiksslóðann. Allir eruð þið pílagrímar í sömu helgigöngu þar sem þið berið á herðum Guð ykkar og helgidóm ykkar og Krist ykkar og hina helgu muni ykkar; og þið búið ykkur allir í hátíðarbúninga boðorða Jesú Krists. Og ég tek einnig þátt í fögnuði ykkar þar sem í krafti bréfs þessa tel sjálfan mig einn ykkar og get glaðst með ykkur yfir því að í kærleika ykkar sækist þið ekki eftir jarðneskum hlutum heldur Guði einum.




Previous - Next

Table of Contents | Words: Alphabetical - Frequency - Inverse - Length - Statistics | Help | IntraText Library

Best viewed with any browser at 800x600 or 768x1024 on Tablet PC
IntraText® (V89) - Some rights reserved by EuloTech SRL - 1996-2007. Content in this page is licensed under a Creative Commons License