Table of Contents | Words: Alphabetical - Frequency - Inverse - Length - Statistics | Help | IntraText Library
Sant’Ignazio di Antiochia
Bréf til Efesusmanna

IntraText CT - Text

  • 20
Previous - Next

Click here to show the links to concordance

20. Ég vonast til að skrifa ykkur annað bréf - ef Jesús Kristur svarar bænum ykkar og leyfir það og sé það Guðs vilji - þar sem ég mun halda áfram að kynna ykkur fyrirætlun Guðs um hinn nýja mann Jesúm Krist. Sú fyrirætlun eflir trú á hann og kærleika til hans og opnar augun fyrir píslum hans og upprisu. Ég mun vissulega gera það ef Drottinn opinberar mér að þegar þið komið allir saman til fundar, séuð þið sem einn maður og eitt nafn í náðarástandi og sameinaðir í trú og í Jesú Kristi (sem var af ætt Davíðs að holdi og er Manssonurinn og Sonur Guðs). Og ef þið eruð nú reiðubúnir einum huga að hlýða biskupi ykkar og prestum og brjóta eitt brauð sem er lyf ódauðleikans og algild lækning til varnar dauða og til lífs í Jesú Kristi um aldir alda.




Previous - Next

Table of Contents | Words: Alphabetical - Frequency - Inverse - Length - Statistics | Help | IntraText Library

Best viewed with any browser at 800x600 or 768x1024 on Tablet PC
IntraText® (V89) - Some rights reserved by EuloTech SRL - 1996-2007. Content in this page is licensed under a Creative Commons License