Table of Contents | Words: Alphabetical - Frequency - Inverse - Length - Statistics | Help | IntraText Library
Sant’Ignazio di Antiochia
Bréf til Magnesíumanna

IntraText CT - Text

  • 6
Previous - Next

Click here to show the links to concordance

6. Og þar sem ég hef nú séð með augum trúarinnar og umvafið allan söfnuð ykkar í persónum þeirra manna sem ég nefndi, þá leyf mér að brýna fyrir ykkur þörfina á því að þið gerið allt samkvæmt Guði. Látið biskupinn sitja Guði í stað og presta hans þar sem postulunum ber að sitja.4 Felið vinum mínum djáknunum þjónustu Jesú Krists, sem var með Föðurnum frá grundvöllun veraldar og var opinberaður á liðnum dögum. Hver og einn ætti að vera fylgispakur Guði; þið verðið að sýna hver öðrum tillitssemi á allan hátt og láta aldrei viðhorf ykkar gagnvart náunganum hafa áhrif á mannlegar tilfinningar ykkar, heldur einfaldlega að elska stöðugt hvern annan í Jesú Kristi. Leyfið engu því að þrífast á meðal ykkar sem gæti kynnt undir óeiningu; haldið fullkomna einingu við biskupinn og þá sem leiða ykkur, öðrum til fordæmis og leiðsagnar um ódauðleika.




4) Við guðsþjónustur í frumkirkjunni sat biskup á palli í miðju hálfhrings presta hans (sem er sama uppstilling og dómstólar notuðu). Þetta er að líkindum samlíking við tólf hásæti postulanna í kringum dýrðarhásæti Guðs. að hið jarðneska helgivald kirkjunnar samsvari sér þannig í hinu himneska.






Previous - Next

Table of Contents | Words: Alphabetical - Frequency - Inverse - Length - Statistics | Help | IntraText Library

Best viewed with any browser at 800x600 or 768x1024 on Tablet PC
IntraText® (V89) - Some rights reserved by EuloTech SRL - 1996-2007. Content in this page is licensed under a Creative Commons License